Tveir erlendir ferðamenn, hver á sínum Land Rover-jeppanum keyrðu langar leiðir utan vegar á Emstruleið, frá Einhyrningi og inn að Álftavatni, að því er Klemenz Geir Klemenzson trússari segir í samtali við mbl.is.
Hann segist hafa staðið mennina tvo að verki sem hann telur að séu franskir.
Málið er komið inn á borð lögreglunnar á Suðurlandi. Það staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, við mbl.is.
Vegurinn lokaður
„Ég sá þá og hafði tal af þeim. Þetta var eiginlega versta sort af utanvegaakstri. Þetta er náttúrulega það sem við óttumst á hverju ári, að fá svona fugla. Ég ræddi við þá á, já, hvernig orðar maður það, á hreinni íslensku á ensku,“ segir Klemenz.
Spurður um hvort ferðamennirnir tveir hafi haldið uppi vörnum segir Klemenz að þeim til varnar hafi ekkert lokunarmerki verið við endann á veginum. Emstruleiðin, sem þeir keyrðu, er lokuð um þessar mundir. Þetta segir Klemenz að sé rétt og að hann hafi rætt við Vegagerðina um úrbætur á merkingunum.
„Þeir keyra þarna fram hjá öllum sköflum. Þarna er töluvert mikið af þeim og þeir stungu hjóli aldrei inn í snjóskafl. Á vorin er allt umhverfið þarna náttúrulega rennandi blautt og mjúkt og þeir skeyttu engu um það, keyrðu sem sagt inn í Álftavatn án þess að ég tæki eftir þeim, því ég var í Hvanngili.“
„Svo sé ég þá þegar ég kem til baka. Þeir snéru við þaðan því Álftavatn er ófært öllum bílum, líka okkur sem erum á mikið breyttum bílum og erum að þjónusta skálana,“ segir Klemenz.
„Ég sé þá og hugsa; hvernig í andskotanum komust þessir gaurar hingað á óbreyttum bílum? Og ég fór upp á hól til að sjá þá fara í gegnum skaflinn rétt hjá Hvanngili. Þá sá ég að þeir fóru ekkert í skaflinn heldur fóru beint í hraunið og fram hjá skaflinum.“
Allt að kílómeters krókar
Klemenz segist næst hafa elt mennina til að ræða við þá.
„Þá stökk ég nú til og keyrði þá uppi og hafði það fyrir rest og þegar ég næ þeim þá eru þeir í einum af þessum stóru krókum sínum út fyrir stóran skafl. Þannig að ég stoppa þá þegar þeir komu af veginum og las svolítið yfir þeim.“
Trússarinn segir ökumennina hafa þurft að fara allt að kílómeters leið í kringum snjóskafl.
Það versta í 40 ár
„Ég er búinn að vera á fjöllum í hátt í 40 ár og þetta er það ljótasta sem ég hef séð. Þetta er alveg ömurleg staða.“
Ætluðu þeir að hætta þessu?
„Auðvitað lofuðu þeir því og keyrðu svo fram hjá öllum sköflum á leiðinni til baka eftir að leiðir skildu. Ég náttúrulega þurfti að koma mér í símasamband til að komast í samband við lögregluna. Lögreglan á Suðurlandi fékk allar upplýsingar, myndir og bílnúmer og allt saman, svo veit ég ekki meir,“ segir Klemenz.
„Þarna voru fullorðnir menn. Það var ekki eins og þetta væru neinir krakkar. Ég fullyrði það að þetta hefði ekki einn einasti Íslendingur gert. En svo má deila um það hver okkar ábyrgð er. Af hverju eru engir fræðslubæklingar um borð í ferjunni? Því allir koma þessir bílar með sömu ferjunni, Norrænu. Við getum gert betur í því að fræða fólk,“ segir Klemenz sem tekur þó skýrt fram að aksturslag tvímenninganna hafi verið glórulaust.



