Tuttugu og fjórir einstaklingar sóttu um stöðu bæjarstjóra í Suðurnesjabæ en umsóknarfrestur er nú runninn út.
Víkurfréttir greina frá þessu nú í dag.
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkur mynda meirihluta í sveitarfélaginu sem samanstendur af þéttbýliskjörnunum Sandgerði og Garði.
Þrír fyrrverandi alþingismenn
Meðal umsækjenda um stöðuna eru fyrrverandi sveitarstjórar og alþingismenn. Nýr bæjarstjóri mun taka við af Magnúsi Stefánssyni sem lét af störfum eftir 14 ára starf, fyrst sem bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Garði og svo frá 2018 sem bæjarstjóri í sameinuðu sveitarfélagi.
Fyrrverandi sveitarstjórar eru áberandi á lista umsækjenda en þar er meðal annars að finna Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóra Hveragerðis, Einar Kristján Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóra Húnavatnshrepps og Skaftárhrepps, Alexöndru Jóhannesdóttur, fyrrverandi sveitarstjóra Skagastrandar, og Ólaf Þór Ólafsson, fyrrverandi sveitarstjóra Reykhólahrepps og Tálknafjarðar. Þess má geta að Ólafur Þór er fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Sandgerðisbæjar.
Þrír fyrrverandi Alþingismenn eru meðal umsækjanda; sjálfstæðismaðurinn Ásmundur Friðriksson, píratinn Gísli Rafn Ólafsson og framsóknarmaðurinn Jóhann Friðrik Friðriksson.
Hér að neðan má sjá nöfn umsækjanda:
- Agnar Júlíusson – Forstöðumaður
- Alexandra Jóhannesdóttir – Fv. sveitar- og hafnarstjóri
- Arna Hrönn Aradóttir – Verkefnastjóri og ráðgjafi
- Aron Heiðar Steinsson – Deildarstjóri
- Ásgeir Sveinsson – Verkefnastjóri
- Ásmundur Friðriksson – Fv. alþingismaður
- Birgir Albertsson Sanders – Blikksmiður
- Einar Kristján Jónsson – Fv. sveitarstjóri
- Gauti Magnússon – Viðskiptastjóri
- Gísli Kr. Björnsson – Lögmaður
- Gísli Rafn Ólafsson – Fv. framkvæmdastjóri
- Hannes Lúðvíksson – Ritari
- Hilmar Vilberg Gylfason – Lögfræðingur
- Jóhann Friðrik Friðriksson – Ráðgjafi
- Jón Ingi Hákonarson – Ráðgjafi
- Kristinn Óskarsson – Stjórnendaþjálfari og ráðgjafi
- Maríanna Hugrún Helgadóttir – Fv. framkvæmdastjóri
- Ólafur Þór Ólafsson – Fv. sveitarstjóri
- Pétur G. Markan – Fv. bæjarstjóri
- Sigurður Jóhannesson – Sérfræðingur
- Snorri Leo Gabríelsson – Þjónn
- Súsanna Björg Fróðadóttir – Lögmaður
- Syed Anisuddin – Öryggisvörður
- Þorsteinn Þorsteinsson – Ritstjóri
