Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið - Vísir

Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið - Vísir

Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið - Vísir

Alls eru rúmlega 14.500 skráðir í hin ýmsu hlaup Reykjavíkurmaraþonsins á morgun og skiptast hlaupastyrkirnir í tvo ólíka hópa, styrki sem hlauparar hafa safnað og styrki sem hlaupahópar hafa safnað.

Þegar þessi frétt er skrifuð hafa safnast rúmar 217 milljónir króna en sú tala á vafalaust eftir að stækka töluvert enda hlaupið á morgun og svo verður söfnunin opin fram á mánudaginn 24. ágúst. 

Hér að neðan er þeir fimm hlauparar sem hafa safnað mestu og þeir fimm hlaupahópar sem hafa safnað mestu. Samanlagt hafa þau safnað meira en tuttugu milljónum króna.

Hleypur fyrir Píeta eftir að hafa glímt við kvíða í æsku

Úr hópi hlaupara hefur Eiður Rafn Gunnarsson, sem hleypur heilt maraþon fyrir Píeta-samtökin, safnað mestu eða rúmlega 4,2 milljónum króna, þegar þetta er skrifað. 

Eiður Rafn sagðist í kvöldfréttum Rúv hlaupa fyrir Píeta eftir að hafa lent í veikindum þegar hann var yngri, glímt við kvíða og nýtt sér ýmsa þjónustu heilbrigðiskerfisins.

Eiður Rafn hefur safnað mestu og getur enn bætt í sarpinn.

„Og eftir að maður lendir í einhverju svona, þótt það sé komið í baksýnisspegilinn, þá situr þetta eftir í manni,“ sagði Eiður Rafn um söfnunina í Rúv.

„Þú ert kannski að taka lokapróf í háskóla og lendir í kvíðakastatörn, þá verður einhver að vera til staðar fyrir þig. Ég get ekki ímyndað mér að vera með mína fjölskyldu og mína vini á sínum tíma. Þess vegna finnst mér samtökin skipta svo miklu máli,“ sagði hann um Píeta-samtökin við Rúv.

Safnar fyrir endurhæfingu sonarins

Hlauparinn sem hefur safnað næstmestu er Sigurbjörg Ýr Guðmundsdóttir sem hefur safnað rúmum 2,6 milljónum af þriggja milljón króna markmiði og hleypur fyrir son sinn, Magnús Mána, sem veiktist alvarlega árið 2023 og hefur verið í krefjandi endurhæfingu síðan þá.

„Íslenska ríkið hefur tekið ákvörðun um að útvega ekki bestu mögulegu endurhæfingu fyrir fólk sem glímir við taugaraskanir og höfum við fjölskyldan því þurft að leita erlendis til að fá bestu mögulegu endurhæfingu sem í boði er í heiminum í dag fyrir Magnús Mána. Þrátt fyrir að það sé skylda ríkisins að útvega bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á, samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna, hefur ríkið aðeins tekið þátt í kostnaðinum af litlum hluta,“ segir Sigurbjörg um endurhæfinguna.

Magnús hefur verið í endurhæfingu í samtals 23 vikur í Madríd yfir eins og hálfs árs tímabil og bættust þrjár vikur við í júlí og ágúst. Kostnaðurinn við hverja viku er rúm milljón króna þannig að í lok sumars verður kostnaður við endurhæfinguna í Madríd kominn upp í tæpar þrjátíu milljónir króna.

„Ég hleyp þess vegna til að styðja við áframhaldandi endurhæfingu Magnúsar Mána og að hann geti áfram notið bestu endurhæfingar sem völ er á,“ segir móðir hans.

Uppbygging ABC-skóla í Búrkína Fasó

Guðjón Norðfjörð hleypur heilt maraþon fyrir ABC barnahjálp og hefur safnað rúmum 2,3 milljónum af einnar milljónar króna markmiði.

„Ég ætla að hlaupa heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og styrkja í leiðinni ABC barnahjálp. Markmiðið er að halda áfram að styðja við uppbyggingu starfs ABC skólans í Bobo Dioulasso í Búrkína Fasó.

Guðjón Norðfjörð með eiginkonu sinni heitinni, Örnu Norðfjörð.

Hleypur fyrir börn með krabbamein

Ævar Ólafsson er í fjórða sæti yfir hlaupara sem hafa safnað mestu og hleypur hálfmaraþon fyrir styrktarfélagið Börn með krabbamein og er liðsmaður í Stuðningsliðinu. Hann hefur safnað um 1,5 milljón króna af 2,5 milljóna króna markmiði.

Ævar Ólafsson með fjölskyldu sinni.

Hleypur fyrir sjúkdóminn sem hann glímir sjálfur við

Jón Árni Árnason hleypur þriggja kílómetra skemmtiskokk og hefur safnað 1,2 milljón króna af einnar milljónar króna markmiði sínu fyrir MND-félagið á Íslandi en hann er sjálfur með sjúkdóminn.

„Ég er nýlega hættur að nota hækjur dagsdaglega, nema þegar um lengri vegalengdir er að ræða, og markmiðið mitt er að reyna að klára þessa 3 km hækjulaus. Það verður klárlega áskorun, en áskorun sem ég ætla að taka!“ segir Jón Árni um hlaupið.

„Ég er svo heppinn að fá lyf við þessum skelfilega sjúkdómi sem hefur hangið yfir mér síðastliðið ár. Þess vegna langar mig að nota þetta tækifæri til að safna fyrir MND félag Íslands og styrkja þannig þau sem eru ekki jafn heppin og ég, ásamt fjölskyldum þeirra og aðstandendum,“ segir hann.

Síðastliðið ár hafi verið upp og niður hjá honum en hann sé heppinn með fólkið í kringum sig sem hefur staðið þétt við bakið á honum.

„Þannig að nú er stefnan sett: 3 km, vonandi án hækja, fyrir gott málefni. Ef þið hafið tök á að styrkja MND félag Íslands í leiðinni, sama hversu lítið eða mikið, þá væri það ómetanlegt.“

Hlaupa til minningar um Sólveigar Huldur tvær

Af hlaupahópum sem hafa safnað mestu hefur einn hlaupahópur safnað langmestu, eða rúmum 6,5 milljónum af 5 milljóna króna markmiðið. Sá hlaupahópur hleypur til minningar um nöfnur sem féllu frá fyrir aldur fram. 

„Þessi hópur er stofnaður til minningar um tvær einstakar Sólveigar Huldu sem kvöddu okkur alltof snemma. Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuðum síðar fæddist litla dóttir okkar, Sólveig Hulda Egilsdóttir, þann 15. maí 2026 og fékk aðeins einn dag með okkur áður en hún lagði af stað í sína síðustu ferð,“ segir um hópinn á síðu Reykjavíkurmaraþonsins.

Sólveig Hulda yngri og eldri sem féllu frá fyrir aldur fram með þriggja mánaða millibili.

„Þótt sorgin sé djúp finnum við huggun í þeirri hugsun að þær séu saman. Litla Sólveig Hulda okkar fékk að fara beint í fang ömmu sinnar, þar sem þær geta sungið, hlegið og passað hvor aðra þar.“

Hópurinn hleypur til styrktar Hollvinasamtökum Sjúkrahússins á Akureyri en Sólveig Hulda eldri starfaði á sjúkrahúsinu og bar hag spítalans og fólksins þar fyrir brjósti. Með söfnuninni vill hópurinn láta eitthvað fallegt leiða af sér í ólýsanlegri sorginni.

„Við viljum heiðra minningu tveggja dýrmætra Sólveigar sem skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur. Hver stuðningur skiptir máli og hjálpar okkur að halda minningu þeirra á lofti.“

Karfar safna fyrir Ljósið

Hlaupahópurinn sem hefur safnað næstmestu eru Karfarnir, fjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn, sem hleypur fyrir Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda. Karfarnir hafa safnað tæpri 1,4 milljón króna af 1,5 milljón króna markmiði. 

Karfarnir hlaupa fyrir Önnu sem greindist með krabbamein.

„Stórfjölskylda sem kennir sig við Karfavoginn þar sem afi og amma bjuggu ætlar að reima á sig hlaupaskóna. Ein okkar stendur í stórræðum og hefur Ljósið reynst henni og hennar nánustu vel. Við viljum því sýna þakklæti okkar í verki og söfnum áheitum fyrir Ljósið með því að hlaupa öll sem eitt, hvert á eigin forsendum og dekkum allar vegalengdir hlaupsins,“ segir um hópinn.

„Aldursbilið er breitt, yngsti þátttakandi er ekki orðinn 1 árs og sá elsti 77 ára. En saman náum við markinu og styðjum í leiðinni okkar konu við að ná sínu marki og við Ljósið í þeirra mikilvæga starfi.“

Hlaupa fyrir Vigni Má

Hlaupahópurinn Fyrir Vigni er í þriðja sæti en þau hlaupa fyrir Píeta-samtökin í minningu Vignis Más Björnssonar, sem féll fyrir eigin hendi fyrir tíu árum, og hafa safnað rúmlega 1,1 milljón króna, tvöfalt meira en hálfrar milljónar króna markmiðinu sem þau settu sér.

„Í ár eru tíu ár liðin frá því að sonur, bróðir og vinur okkar, Vignir Már Björnsson, féll fyrir eigin hendi. Tíu ár er langur tími af söknuði, en á þessum tímamótum langar okkur að gera eitthvað sem getur skipt máli fyrir aðra – í hans nafni,“ segir hópurinn um söfnunina.

„Þess vegna ætlum við að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu og safna fyrir Píeta samtökin. Með hlaupinu viljum við heiðra minningu Vignis og leggja okkar af mörkum til að styðja við þau sem glíma við sjálfsvígshugsanir, syrgjendur og aðstandendur. Píeta samtökin vinna ómetanlegt starf með því að veita stuðning, hlustun og von þegar mest á reynir.“

Vignir Már féll fyrir eigin hendi fyrir tíu árum síðan.

Hlaupa fyrir Albert sem lést eftir baráttu við heilaæxli

Fjórða sætið vermir Team Albert sem hefur safnað rúmlega 1,1 milljón króna af milljón króna markmiði og hleypur í minningu Alberts Leós Haagensen, umhverfis- og byggingarverkfræðings, sem lést fyrr á árinu eftir skammvinna glímu við heilaæxli.

„Við hlaupum til minningar um kæran samstarfsfélaga okkar, Albert Leó Haagensen, sem lést 1. janúar síðastliðinn. Jafnframt hlaupum við til styrktar Ljósinu, sem veitti Alberti ómetanlegan stuðning á lokametrum lífsins,“ segir hópurinn um söfnunina.

Hlaupa í minningu mömmu

Fimmti atkvæðamesti hópurinn er Fyrir mömmu sem hleypur fyrir Ljósið, Endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda, til minningar um hjúkrunarfræðinginn Guðbjörgu Pálsdóttur sem lést fyrr á árinu eftir baráttu við krabbamein. Þau settu sér milljón króna markmið og náðu því.

„Við systkinin og pabbi ætlum að hlaupa í minningu elsku mömmu til styrktar Ljóssins. Með því viljum við þakka Ljósinu fyrir þeirra ómetanlega stuðning og mikilvæga starf,“ segir hópurinn.

Fjölskylda Guðbjargar Pálsdóttur hleypur í minningu hennar.
#fyrir #hafa #mestu #safnað #þessi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262924112d/thessi-hafa-safnad-mestu-fyrir-reykjavikumarathonid

📰 Aðrar fréttir

ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 2
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 2
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 2
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 2
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 2
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 2
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 3
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 3
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 3
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 3
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 3
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 2
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 3
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 3
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 2
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 3
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 3
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 3
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
📅 08.10.2026 👁️ 4
Deilt um leigubremsu – „Stjörnugalin djöflasýra sem stenst enga skoðun“
Þung orð hafa verið látin falla um leigubremsufrumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra. Seðlabankastjóri hefur lýst leigubr...
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þetta eru að­gerðirnar sem fara á í - Vísir
Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær g...
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar kaupir hafnfirskt bæjarblað Ág­úst Bjarni Garð­ars­son hef­ur keypt bæj­ar­blað­ið Fjarð­ar­frétt­ir í gegn­um ráð­gj...
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
📅 08.10.2026 👁️ 4
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum
Þrettán aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að bjarga kjarasamningum Skuld­sett heim­ili fá sam­tals 1,3 millj­arða króna í ein­skiptis­vaxta­bæt­ur verði...
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
📅 08.10.2026 👁️ 4
Sextán ára dómur yfir Margréti Löf staðfestur
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms um 16 ára fangelsi yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, fyrir að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra...
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um...