Þingmaður Viðreisnar segir að upplýsingabeiðni utanríkismálanefndar Alþingis, vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, hafi verið hafnað því hún hafi hvorki verið í samræmi við þingskaparlög né eðlileg milliríkjasamskipti.
Meirihlutinn hafnaði í morgun beiðni stjórnarandstöðunnar um að fá upplýsingar um fundi og samskipti ESB við íslensk stjórnvöld á kjörtímabilinu. Fyrir liggur samsvarandi beiðni til íslenskra stjórnvalda.
„Þetta snýst um eðlileg milliríkjasamskipti og þetta snýst líka um þingskaparlögin, þetta eru lög frá Alþingi sem farið er eftir,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.
„Nú er það þannig að þessi upplýsingabeiðni, hún auðvitað nær til íslenskra stjórnvalda þannig að það er auðvitað lítið mál að beina beiðni þangað en það er ekki eðlilegt að íslenskir þingmenn séu að biðja um svona upplýsingar.“
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir minnihlutann ætla að skoða hvort hann geti sjálfur óskað eftir þessum upplýsingum frá Evrópusambandinu.
„Af hverju vill meirihlutinn minni, frekar en meiri, upplýsingar af þessu máli. Auðvitað vakna spurningar um það hvort það sé eitthvað að óttast varðandi svör frá Evrópusambandinu um samskiptin við íslensk stjórnvöld, það eru áhyggjurnar sem við höfum,“ segir Diljá.
Getið þið ekki sjálf óskað eftir þessum upplýsingum?
„Það er meðal þess sem við þurfum að skoða núna. En við höfum auðvitað verið með þessa beiðni inniliggjandi í nefndinni í yfir mánuð og gerðum bara ráð fyrir því að við gætum fundið flöt á því. Því það eru engin lög eða reglur sem binda hendur utanríkismálanefndar við að afla upplýsinga.“