Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi Vestra stóðu fyrir opnum fundi á Laugarbakka í gær, þriðjudag. Skýrsla sem Torfi Jóhannesson vann fyrir SSNV og SSV var kynnt en hún fjallar um hvernig er best að bæta landeigendum það tjón sem þeir verða fyrir þegar línur og línustæði eru lögð í gegnum land þeirra.
Ágætlega var mætt á fundinn, þar sem að Gísli Einarsson stýrði pallborðsumræðum að kynningu lokinni. Í pallborði voru m.a. fulltrúar frá Landsneti, sveitarstjórnum og hagsmunasamtökum landeiganda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3.
Fundargestir voru sammála um nauðsyn þess að flytja raforku og að þetta væri almannahagsmunamál. Margir hverjir voru þó ósáttir við þá leið sem var valin af Landsneti en nokkrir kostir voru í boði. Að sögn Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets, var byggðarleiðin valin framyfir heiðarleiðina því hún kom betur út í umhverfismati. Heiðarleiðin var hugsuð fjær byggð en byggðarleiðin liggur í gegnum mörg eignarlönd.
Hagsmunasamtök landeiganda um Holtavörðuheiðarlínu 3 hafa einnig gagnrýnt að með fyrirhugaðri lagasetningu sé verið að taka af þeim eignarrétt sem tryggður sé í stjórnarskrá.
Líflegar og málefnalegar umræður sköpuðust á fundinum segir fulltrúi SSNV í samtali við fréttastofu.