Landsréttur hefur í annað sinn staðfest sýknudóm héraðsdóms varðandi hryðjuverkahluta ákærunnar í hryðjuverkamálinu svokallaða og héldust dómar vegna vopnalagabrots óbreyttir.
Sindri Snær Birgisson var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Ísidór Nathansson í 15 mánaða fangelsi. Þá er sakborningunum gert að greiða fimmtung sakarkostnaðar.
Dómurinn var kveðinn upp rétt í þessu en hvorugur sakborninganna mætti í dómsal.
Sem fyrr segir er um að ræða annað sinn sem Landsréttur dæmir í málinu en Hæstiréttur ómerkti fyrri dóminn í mars.
Fordæmalaus atburðarás
Upphaf málsins var handtaka Sindra Snæs Birgissonar í september árið 2022 eftir að upp komst að hann hefði verið að þrívíddarprenta vopn.
Eftir að hafa skoðað símagögn Sindra komu í ljós óhugnanleg samskipti hans við Ísidór Nathansson sem lögregla mat sem svo að mennirnir hefðu í hyggju að fremja hryðjuverk hér á landi.
Í kjölfarið hófst fordæmalaus atburðarás í íslenskri sögu þar sem í fyrsta sinn voru menn ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka.
Faðir fyrrverandi ríkislögreglustjóra flæktist inn í rannsókn málsins sem leiddi til þess að embættið þurfti að segja sig frá rannsókninni, viðbúnaðarstig hryðjuverkaógnar var hækkað, gefa þurfti úr nýja ákæru og víkja þurfti dómara frá í málinu, svo fátt eitt sé nefnt.
Vantaði heildstætt mat
Þann 6. mars á síðasta ári staðfesti Landsréttur sýknudóm héraðsdóms varðandi hryðjuverkahluta ákærunnar og voru dómar vegna vopnalagabrots mildaðir.
Sindri var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánaða fangelsi.
Málið fór svo fyrir æðsta dómstig landsins, Hæstarétt, þar sem dómurinn ómerkti dóm Landsréttar.
Hæstiréttur taldi Landsrétt ekki hafa gert heildstætt mat á því hvort athafnir Sindra og Ísidórs hafi sýnt ótvírætt í verki að þeir ætluðu að fremja hryðjuverk, sérstaklega í ljósi þeirra alvarlegu vopnalagabrota sem þeir voru sakfelldir fyrir.