Samkvæmt septembertalningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) fækkaði íbúðum í byggingu á landinu um 11% á síðustu sex mánuðum. Nýjum óseldum íbúðum hefur fjölgað hratt og eru um 85% fleiri en fyrir ári síðan. Alls eru 6.216 íbúðir í byggingu á landinu en í marsmánuði voru 6.988 íbúðir í byggingu. Þetta er fækkun um 772 íbúðir, eða 11%, á síðustu sex mánuðum. Á einu ári er fækkunin 348, eða rúmlega 5%.
Svört skýrsla frá HMS: Verulega hefur hægt á uppbyggingu íbúða