Svarthöfði fylltist stolti þegar hann horfði á viðtalið við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í hlaðvarpinu: The Rest is Politics. Þar kom Kristrún, leiftrandi klár og glæsileg og hreinlega brilleraði. Alastair Campbell kunni aldeilis að meta hana og sama verður að segja um Svarthöfða.Óhætt er að segja að Kristrún Frostadóttir talar bestu ensku allra þjóðarleiðtoga og eru þá ekki undanskildir allir þeir sem hafa ensku að móðurmáli. Hún hefur þetta tungumál einfaldlega á valdi sínu, rétt eins og íslenskuna.
Svarthöfði skrifar: Fallin með 4,9