Sumarbústaður við Veiðilund við Þingvallavatn gjöreyðilagðist í bruna í kvöld. Brunavörnum Árnessýslu barst tilkynning um eldinn um 21:20 og bústaðurinn varð fljótt alelda.
„Þegar fyrstu slökkviliðsmenn komu á staðinn þá var samt húsið eiginlega alelda þannig að það var farið strax í það að verja gróður þarna í kringum húsið og halda eldinum í skefjum. Þarna þarf að flytja allt vatn með tankbílum á staðinn,“ segir Lárus Kristinn Guðmundsson, settur slökkvistjóri Brunavarna Árnessýslu.
Hann segir að fólk hafi verið í bústaðnum þegar eldurinn kom upp en enginn hafi slasast.
Valgeir Vilhjálmsson, sumarbústaðareigandi við Þingvallavatn, var staddur á hátíð niðri við Þingvallavatn ásamt fleira fólki sem tók eftir reyknum í sumarbústaðahverfinu Veiðilundi.
„Það verður alelda mjög fljótt. Við heyrum frá fyrstu hendi að þetta hafi verið kolagrill sem valt á hliðina í vindhviðu sem varð þess valdandi að þetta hús varð alelda á mjög skömmum tíma,“ segir Valgeir.
Lárus segir að slökkviliðin hafi fljótt náð tökum á eldinum. Hann segir að skjót viðbrögð hafi komið í veg fyrir að eldurinn breiddist út.
„Auðvitað er alltaf hætta þegar eldur kemur upp og þarna er ekki langt á milli húsa og eins er gróður þarna á milli en snarræði kom í veg fyrir að eldur breiddist út,“ segir Lárus.
Slökkvistarfi lauk um klukkan hálf eitt í nótt. Lárus segir að sumarbústaðurinn sé gjörónýtur.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn á eldsupptökum.