Stýrivaxtahækkun Seðlabankans 21. ágúst leiddi til þess að bankarnir voru fljótir að hækka breytilega óverðtryggða vexti til samræmis. Aðrir vextir stóðu flestir hverjir í stað. Einn vaxtaflokkur hækkaði þó meira en nam hækkun Seðlabankans.
Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
Seðlabankinn hækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig og stóru viðskiptabankarnir þrír hafa allir hækkað óverðtryggða vexti sína að sama skapi.
Breytilegir verðtryggðir vextir eru aftur á móti alls staðar óbreyttir. Sömu sögu er að segja af föstum óverðtryggðum vöxtum sem eru óbreyttir hjá Arion banka og Íslandsbanka en hafa ýmist staðið í stað eða hækkað um allt að 0,20 prósentustig hjá Landsbankanum.
Fastir verðtryggðir vextir hafa hækkað hjá tveimur af þremur bönkum. Þeir voru hækkaðir um 0,10 prósentustig í Landsbankanum sem er innan við helmingurinn af stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Arion banki hefur hækkað sömu vexti um 0,30 prósent, nokkuð meira en Seðlabankinn hækkaði sína vexti.