Reykjavíkurborg hyggst afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við Suðurlandsbraut 76, þar sem til stóð að reisa mosku. Málið verður tekið fyrir á fundi borgarráðs í dag.Morgunblaðið fjallar um málið í dag.Félagið fékk lóðinni úthlutað árið 2013 en ekkert hefur verið byggt þar. Jafnframt stendur til að afturkalla úthlutun tveggja lóða við Bræðraborgarstíg 2 og Bakkastíg 8 sem rússneska rétttrúnaðarkirkjan fékk árið 2008. Þær standa einnig auðar.
Borgin ætlar að taka moskulóðina til baka