Óvirkir lífeyrissjóðir og ótengdir fjárfestar

Óvirkir lífeyrissjóðir og ótengdir fjárfestar

Óvirkir lífeyrissjóðir og ótengdir fjárfestar

Lýður Guðmundsson, annar svokallaðra Bakkavararbræðra, hefur undanfarin misseri gert sig æ meira gildandi í íslenska fjármálakerfinu.

Hann er nú stærsti einkafjárfestirinn í tveimur íslenskum bönkum: Kviku banka og Arion banka. Félag Lýðs á núna 5,5% í Kviku banka, sem gerir hann að fimmta stærsta hluthafa bankans, en einungis fjórir lífeyrissjóðir eiga stærri hluti í bankanum.

Hlutur Lýðs í Arion banka er 2,74%, sem gerir hann að ellefta stærsta hluthafa þess banka, á eftir 9 lífeyrissjóðum og tveimur fjárfestingafélögum.

Þessi innkoma Lýðs Guðmundssonar inn í hluthafahóp íslenskra fjármálafyrirtækja er athyglisverð í ljósi fyrri aðkomu hans að íslenskri banka- og fjármálastarfsemi.

Lýður var ásamt bróður sínum stærsti eigandi Kaupþings í gegnum félag þeirra Exista hf, allt fram til þess tíma að bankinn féll haustið 2008.

Margháttuð lögbrot voru framin í rekstri Kaupþings banka eins og fjöldi dóma yfir stjórnendum og stjórnarmönnum vitnaði um. Exista-bræður voru þó ekki í þeim hópi. Báðir bankastjórar bankans, einn aðaleigandi hans og fleiri starfsmenn fengu áralanga fangelsisdóma, þar sem Al-Thani-málið er líklegast einna þekktast.

Lýður Guðmundsson fékk hins vegar 8 mánaða dóm, sem að hluta til var skilorðsbundinn, fyrir að hafa brotið hlutafélagalög í tengslum við rekstur Exista og blekkingar í viðleitni til þess að komast yfir fyrirtækið eftir hrun.

Árið 2013 kom nafn Lýðs upp þegar loks tókst að rekja til fulls upp alla hina leyndu þræði að baki einkavæðingu Búnaðarbankans árið 2003. Búnaðarbankinn átti síðar eftir að verða Kaupþing banki - en á rústum hans varð svo til Arion banki.

Þýski leppurinn

Það er kunnara en frá þurfi að segja að einkavæðing ríkisbankanna Búnaðar- og Landsbanka árið 2003 var vægast sagt umdeild. Kaupendum Búnaðarbankans, svokölluðum S-hópi, íslenskra fjárfesta og fyrirtækja tengdum Framsóknarflokknum, var seldur banki í almenningseigu á þeirri forsendu að í hópnum væri erlendur banki með þekkingu og reynslu sem nýtast myndi við rekstur bankans og setja hann í öruggar hendur.

Þegar á reyndi var ekki um að ræða stóran alþjóðlegan banka eins og S-hópurinn hafði sagst í þeirra, heldur tiltölulega óþekktan þýskan banka.

Þarna og síðar komu reglulega fram einstaklingar sem sögðu þessi viðskipti hreinan leikþátt; þýski bankinn hafi aðeins verið leppur fyrir íslenska fjárfesta svo þeir gætu komist yfir bankann. Einkum og sér í lagi verðbréfafyrirtækið Kaupþing.

Eftir hrun urðu raddirnar enn háværari, sem endaði með því að sérstakri rannsóknarnefnd var falið að kanna málið. Hún skilaði niðurstöðu sinni í mars 2013.

Aðkoma þýska bankans reyndist hafa verið tómt leikrit. Að baki kaupunum voru Íslendingar, Kaupþing hf, sem fjármagnaði þau. Þýski bankinn var lítið annað en leppur, sem aldrei átti neitt í íslenska bankanum. Þegar baksamningar voru svo gerðir upp þremur árum síðar, og Kaupþing hafði sameinast Búnaðarbankanum, runnu 100 milljón dollarar til tveggja aflandsfélaga fyrir ómakið allt. Eignarhald annars þeirra tókst nefndinni að staðfesta en ekki hins sem hafði haft tæpa 50 milljón dollara upp úr krafsinu.

Það er að segja þar til árið 2017 að það var loks upplýst í bók blaðamannsins Þórðar Snæs Júlíussonar, Kaupthinking – bankinn sem átti sig sjálfur.

Eigendur seinna aflandsfélagsins, sem hafði grætt óheyrilega fjármuni á þessum einkavæðingarblekkingarleik, höfðu verið þeir, sem seinna urðu stærstu eigendur bankans; Exista-bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir.

Það kann ef til vill að koma mörgum spánskt fyrir sjónir að stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Kviku banka og ekki síst Arion banka hafi hlotið dóm fyrir brot á hlutfélagalögum og verið dæmdur til refsingar fyrir.

Einnig að upplýst hafi verið um að hann hafi gegnt hlutverki í þeirri fléttu að komast yfir verðmætar ríkiseignir með blekkingum og hagnast vel á því, forvera þess sama banka og hann hefur nú fjárfest í - eftir gjaldþrot hans í millitíðinni.

Hæfisreglur matskenndar

Þrátt fyrir að lög um hæfi manna til þess að stýra, sitja í stjórnum og vera eigendur banka hafi verið hert til muna eftir bankahrunið, eru þau enn nokkuð matskennd.

Jarnvel þó nú sé beinlínis sagt í lögum að mat á því hvort viðkomandi sé hæfur skuli það velta líklegum áhrifum þess til heilbrigðs og trausts reksturs og líklegra áhrifa hans á fjármálafyrirtækið; og vísað til þess sérstakkega að horft skuli eftir orðspori viðkomandi.

Þetta er auðvitað allt frekar matskennt.

Aum þess á ekkert af þessu við svo lengi sem hlutur viðkomandi er undir 10% í fjármálafyrirtæki, banka eða tryggingafélag til dæmis.

Það er segja nema viðkomandi hafi tryggt sér áhrif og atkvæði með samningum við aðra hluthafa sem teljast augljóslega ná umfram 10% eignarhlutinn.

Aftur er þetta svolítið matskennt en jafnframt áhugaverð í landi þar sem hlutfallsleg eign manna í félögum, hefur oft lítið með að gera hversu miklum áhrifum þeir ná.

10% er nefnilega ekki alltaf 10%.

Sofandi risar

Á Íslandi myndi því mat á þessu atriði skipta jafnvel enn meira máli en í Evrópu, þaðan sem regluverkið er jú fengið. Ástæðan er fyrirferð lífeyrissjóða í skráðum félögum á Íslandi.

Þar gildir einu hvort um sé að ræða bankana þrjá sem í Kauphöllinni, þar sem lífeyrissjóðirnir eiga samanlagt á bilinu 30-50% alls hlutafjár í þeim þremur, eða smásölurisana tvo, Haga og Festi, þar sem sjóðirnir eiga samanlagt um og yfir 70% í báðum þessara keðja, sem hafa um 70% markaðshlutdeild á matvörumarkaði landsins.

Raunar eiga lífeyrissjóðir líka hlut í móðurfélagi þriðju keðjunnar á matvörumarkaði og tengjast þannig 90% af þessum markaði á Íslandi.

Lífeyrissjóðirnir á Íslandi eiga reyndar meira en helming í sjö skráðum félögum, auk Haga eru þar til dæmis Eimskipafélagið, fasteignafélagið Reitir, Síminn og Nova. En auk meirihluta í þessum tveimur símafyrirtækjum eiga lífeyrissjóðir ríflega fjórðung í þriðja fjarskiptafélaginu, Sýn.

Það er rétt að taka það fram að þó að lífeyrissjóðirnir séu taldir saman hér eru þeir auðvitað ekki einn og sami fjárfestirinn eða samstæð heild. Eins er það að kalla má ekki af góðu sem sjóðirnir hafa komist í þessa stöðu. Takmarkanir á því hversu mikið sjóðirnir mega fjárfesta í útlöndum hafa og koma enn þá í veg fyrir að margir möguleikar aðrir séu til að ávaxta greiðslur sjóðsfélaga sinna, auk þess sem gjaldeyrisáhætta gerir það misfýsilegt oft og tíðum.

Það er engu að síður forvitnilegt að skoða hvernig áhrif þeirra birtast í stjórnum margra þessara félaga, hvort sem er saman eða hver fyrir sig. Stjórnir skráðra félaga hafa mikil völd, meðal annars til að ráða og reka forstjóra og hafa að öðru leyti áhrif á rekstur fyrirtækjanna sem eiga í hlut.

Fjallað er um fjárfestingar Lýðs Guðmundssonar í fjármálafyrirtækjum á Íslandi og íslenska lífeyrissjóði í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:

Að teika Haga-vagninn

Þetta er kannski einna skýrast í tilfelli tveggja stærstu smásölukeðja landsins. Tveir lífeyrissjóðir eiga stærstu hlutina í báðum, sá Verslunarmanna og Gildi. Sá fyrrnefndi er stærstur í Festi með 16% og Gildi með rétt rúm 16% er stærstur í Högum.

Það síðarnefnd er móðurfélag stórra fyrirtækja eins Bónuss og Hagkaupa, en líka Olís og fleiri . Á lista yfir 20 stærstu hluthafa Haga eru 12 þeirra lífeyrissjóðir.

Fjórir þeirra raða sér í efstu sæti lista yfir stærstu hluthafa. Fimmti á listanum er fjárfestingafélag Samherjafjölskyldnanna, Kaldbakur hf, sem á rétt um 8% hlut í Högum. Þessi hlutur dugar engu að síður Kaldbaki hf. til áhrifa langt umfram þann hlut. Undanfarin þrjú ár hefur enda Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri Kaldbaks, setið sem stjórnarformaður í Högum.

Engir fulltrúar annarra eigenda sitja eða hafa setið í stjórn með Eiríki, heldur aðeins fjórir svokallaðir óháðir stjórnarmenn. Þar er því enginn fulltrúi stærsta hluthafans, lífeyrissjóðsins Gildis, þess næststærsta, lífeyrissjóðs verslunarmanna, eða lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, það er að segja þriggja sjóða sem eiga saman yfir 40% alls hlutafjár í smásölurisanum.

Valdamiklir nefndarmenn

Undanfarin ár hefur verið rík áhersla á svokallaðar tilnefningarnefndir, sem fara yfir framboð til stjórna skráðra félaga og gera tillögur um stjórnarmenn. Í flestum, ef ekki öllum, tilfellum eru það svokallaðir óháðir stjórnarmenn, sem rík áhersla er lögð á að séu sjálfstæðir í verkum sínum, það er að segja ekki undir hæl eða stjórn stærstu eigenda. Þeir eru þó oft ekki óháðari en svo að fulltrúar eða beinir eigendur lítilla fjárfestingafélaga verða ofan á í tillögum þessara nefnda. Sjálfir tilnefna lífeyrissjóðirnir, hvorki sameiginlega né hver fyrir sig fulltrúa í stjórnir. Þar af leiðandi er sú staða oft uppi að tiltölulega litlir hluthafar, eins og í tilfelli Kaldbaks, komast í þá stöðu að hafa margföld áhrif við stjórnun félaganna en þeir hefðu annars.

Hjá hinni smásölukeðjunni Festi hf. var þetta lengi vel eins, nema að þar sat ýmist sem stjórnarformaður eða varastjórnarformaður Þórður Már Jóhannesson sem átti þá eitt og hálft prósent í Festi í gegnum eignarhaldsfélag sitt. Þrír stærstu hluthafar Festi voru á sama tíma hver og einn með um og yfir 10% hlut hver – allt lífeyrissjóðir. Enginn beinn fulltrúi þeirra sat hins vegar í stjórninni; eingöngu svokallaðir óháðir stjórnarmenn, valdir af tilnefninganefnd.

Þórður Már sagði af sér stjórnarformennsku í kjölfar ásakana á hendur honum og fleirum í máli Vitaliu Lazarevu, árið 2022. Þó ekki fyrr en hann hafði sagt upp forstjóra Festi, Eggerti Kristjánssyni, sem hafði opinberlega tekið afstöðu með Vitaliu. Lífeyrissjóðir og fleiri hluthafar brugðust harkalega við og stuttu síðar sagði Þórður af sér sem formaður stjórnarinnar.

Þórður mætti síðan aftur til leiks og bauð sig fram í stjórn, og mörgum að óvörum tók þá tilnefningarnefnd Festi vel í framboð Þórðar og lagði til við hluthafafund að Þórður yrði kjörinn í stjórnina. Lífeyrissjóðirnir, þeir sem voru stærstu hluthafar Festi, með LSR í farabroddi, lýstu í kjölfarið yfir vantrausti á tilnefningarnefndina. Svo fór að lokum að Þórður dró framboð sitt til baka.

Stærsta eina prósentið

Sams konar mynd blasir líka við í öðrum skráðum hlutafélögum. Heiðar Guðjónsson var til að mynda stjórnarformaður Sýnar í fimm ár allt þar til hann tók sjálfur við starfi forstjóra árið 2019 og þar til hann seldi allan hlut sinn í félaginu árið 2022. Lengst af á þessum tíma voru allt að fimm lífeyrissjóðir stærri hluthafar en félag Heiðars – LSR til dæmis með upp undir þrefaldan hlut hans í félaginu.

Heiðar Guðjónsson er í dag stjórnarformaður Íslandsbanka. Hann tók við þeirri stöðu í ársbyrjun. Fyrir tæpu ári birtust í fjölmiðlum frétt undir fyrirsögninni Heiðar orðinn stór í Íslandsbanka. Í fréttinni var Heiðar svo sagður orðinn stærsti einkafjárfestir í bankanum. Í framhaldi af því kom í ljós að hlutur Heiðars í bankanum væri þá 0,8% af öllu hlutafé bankans.

Þetta dugði Heiðari þó til að komast í æðstu stjórnunarstöðu bankans, þar sem einstaka lífeyrissjóðir eiga tífalt meira en Heiðar og samanlagt hátt í helming í bankanum.

Það er lítið varðveitt leyndarmál að undanfarin misseri og ár hefur verið auðvelt að komast að við stjórnvölinn í skráðum fyrirtækjum á Íslandi. Það að eiga jafnvel langt innan við 5% hlut í skráðu félagi getur geta skilað áhrifum í margföldu hlutfalli við þann eignarhlut. Þetta sýna auðvitað ótal dæmi, Hagar, Festi, Sýn, Íslandsbanki o.fl.

Og eins og oft er það svo hin séríslenska glíma við að tengja saman tengda aðila sem gerir þessi mál enn flóknari en um leið allt að því farsakennd.

Tengslarof í tryggingafélagi

Dæmi um þetta er tryggingafélagið Sjóvá. Nokkrir lífeyrissjóðir eiga samtals yfir 40% í félaginu, þar af er meira en þriðjungur hlutafjár í eigu fjögurra sjóða, sem allir eiga í kringum 8% hlut hver. Félagið Hrólfssker er hins vegar stærsti hluthafi Sjóvár með rúmlega 15% hlut í félaginu. Hrólfsker er í eigu tveggja fjárfestingafélaga. Félagið sem minnst var á hér áðan, Kaldbakur, á ríflega 60%, en tæp 40% eru í eigu félagsins Kjálkaness. Eigendur þess eru að meginstofni til meðlimir úr sömu stórfjölskyldu sem eiga saman útgerðarfélagið Gjögur á Grenivík.

15% hlutur Hrólfsskers hefur þó við fyrstu sýn mun meira vægi við stjórnun Sjóvár en 15% hluturinn gefur til kynna. Tveir hluthafar og stjórnendur Kjálkaness sitja þannig í fimm manna stjórn Sjóvár, þar af annar sem stjórnarformaður. Frændurnir Ingi Jóhann Guðmundsson og Björgólfur Jóhannsson eru báðir í hluthafahópi Kjálkaness, Ingi Jóhann þó mun stærri hluthafi þar. Þrátt fyrir að eiga minni hlut í því er Björgólfur hins vegar stjórnarformaður Kjálkaness en líka stjórnarformaður Sjóvár.

Þeir eru því báðir fulltrúar eins eiganda í Sjóvá, en samt ekki.

Það er í það minnsta mat Sjóvár. Í upplýsingum um stjórn, stjórnarmenn og tengsl þeirra við önnur félög en þó ekki helst eigendur Sjóvár, er einungis einn stjórnarmaður sagður tengdur hluthöfum Sjóvár, það er að segja Ingi Jóhann Guðmundsson.

Stjórnarformaðurinn Björgólfur Jóhannsson er hins vegar sagður „óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins”, jafnvel þótt listað sé upp stjórnarsetu hans í stórum óbeinum hluthafa í Sjóvá og augljós tengsl hans við annan eiganda, Samherja, eiganda fjárfestingafélagsins Kaldbaks. Björgólfur var fyrir fáeinum misserum forstjóri Samherja og er auk þess tengdur eigendum þess félags í gegnum bæði viðskiptasambönd til áratuga og fjölskyldutengsl.

Tjá sig ekki

Fyrirferð lífeyrissjóðanna á hluthafalistum skráðra hlutafélaga á Íslandi á sama tíma og þeir hafa gert hvað þeir geta til að forðast að koma að stjórnum félaganna, hafa oft verið rædd og ýmist gagnrýnd eða fagnað á síðustu árum. Félög sem sjóðirnir eiga stóra hluti í hafa til að mynda verið staðin að því að brjóta lög og greiða jafnvel hundruð milljóna króna fyrir brot á samkeppnislögum, sem höfðu neikvæð áhrif á neytendur og þannig sjóðsfélaga sjóðanna sjálfra. Þetta hefur oftar en ekki gerst án þess að vart hafi orðið mótmæla eða sérstakra aðgerða líferyisjóðanna; í það minnsta ekki opinberlega.

Þetta helst hefur undanfarnar vikur óskað eftir viðtölum við forsvarsmenn þriggja stærstu lífeyrissjóða landsins og þeirra fyrirferðarmestu í eigendahópi þessara fyrirtækja: Gildis, LSR og Lífeyrissjóðs Verslunarmanna. Enginn forsvarsmanna sjóðanna þriggja gaf kost á viðtali. Tveir þeirra neituðu auk þess sem fréttastofu var tjáð að framkvæmdastjóri lífeyrissjóðs Verslunarmanna færi einfaldlega ekki í viðtöl. Aðrir starfsmenn væru ekki tiltækir.

#fjárfestar #lífeyrissjóðir #ótengdir #óvirkir


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-17-ovirkir-lifeyrissjodir-og-otengdir-fjarfestar-487228

📰 Aðrar fréttir

New website lets you check the latest water quality at Canary Islands beaches before you swim
📅 17.09.2026 👁️ 0
New website lets you check the latest water quality at Canary Islands beaches before you swim
Beachgoers in the Canary Islands now have a new way to check the latest available water-quality information before deciding where to swim. A Canary Is...
Hjartaknúsarinn játar að sögusagnirnar séu sannar
📅 17.09.2026 👁️ 0
Hjartaknúsarinn játar að sögusagnirnar séu sannar
Leikarinn og leikstjórinn Tom Cruise segir að „sögusagnirnar séu sannar“ þegar hann fjallar um umdeilda hegðun sína á kvikmyndasetti.Tom Cruise hefur ...
Spreyttu þig á PISA-spurningunum - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
Spreyttu þig á PISA-spurningunum - Vísir
Niðurstöður PISA-könnunarinnarsem lagðar voru fyrir nemendur í 10. bekk árið 2025 vöktu mikil viðbrögð enda hrakar íslenskum nemendum enn frekar þegar...
„Ég er hrein­lega mjög hrædd“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
„Ég er hrein­lega mjög hrædd“ - Vísir
„Þetta hefur ekki snúist um að fá nýjan forstjóra. Þetta hefur snúist um hvernig þau losuðu sig við hinn forstjórann sem var bara fullkomlega fær um a...
Þrír slógust á bensínstöð – Sérkennilegt atvik í bílakjallara
📅 17.09.2026 👁️ 1
Þrír slógust á bensínstöð – Sérkennilegt atvik í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls var 61 mál skráð í kerfum lögreglu á tímabilinu frá klukkan 17 í g...
Borgin ætlar að taka moskulóðina til baka
📅 17.09.2026 👁️ 1
Borgin ætlar að taka moskulóðina til baka
Reykjavíkurborg hyggst afturkalla lóðaúthlutun til Félags múslima á Íslandi við Suðurlandsbraut 76, þar sem til stóð að reisa mosku. Málið verður teki...
Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
Hlaut Náttúru­verndar­viður­kenningu Sig­ríðar í Bratt­holti - Vísir
Á vef stjórnarráðsins segir að Andri Snær hafi um árabil verið ötull málsvari náttúrunnar og vakið almenning til vitundar um náttúruvernd og loftslags...
Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
Sam­þykktu frum­varp Grahams einu og hálfu ári seinna - Vísir
Frumvarpið, sem hefur áður verið samþykkt af öldungadeildinni, felur í sér refsiaðgerðir gegn rússneskum aðilum og fyrirtækjum. Þar á meðal eru fyrirt...
Stýrivaxtahækkun skilaði sér hratt í dýrari óverðtryggðum lánum
📅 17.09.2026 👁️ 0
Stýrivaxtahækkun skilaði sér hratt í dýrari óverðtryggðum lánum
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans 21. ágúst leiddi til þess að bankarnir voru fljótir að hækka breytilega óverðtryggða vexti til samræmis. Aðrir vextir st...
Two injured in electric scooter accident in Gran Canaria
📅 17.09.2026 👁️ 0
Two injured in electric scooter accident in Gran Canaria
Two people have been injured following a collision involving electric scooters in Gran Canaria. According to reports from the Emergency Coordination C...
Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri - Vísir
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur áður lýst því yfir að hún vilji halda skólanum í Reykjavík og þá hefur bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Hilmar Gunnar...
Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn
📅 17.09.2026 👁️ 0
Sleppt úr haldi þrátt fyrir að játa ítrekað samræði við barn
Landsréttur sneri á mánudag við gæsluvarðhaldsúrskurði yfir manni sem grunaður er um ítrekuð kynferðisbrot gegn barni. Maðurinn hefur játað að hafa ít...
Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 0
Skýjað og dá­lítil væta víðast hvar - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á morgun, föstudag, sé spáð norðvestan og vestan kalda vestantil á landinu, annars hægari breytilegri átt. Skýja...
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi - Vísir
Magaverkirnir hurfu. Í staðinn fékk ég svefntruflanir. Ég neitaði hins vegar að gefast upp. Kreatín hafði lengi notið vinsælda meðal íþróttafólks. Nú ...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar leiðir eða plastrúllubaggapólitík
📅 17.09.2026 👁️ 2
Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar leiðir eða plastrúllubaggapólitík
Mynd Fyrir réttri viku var loks greint frá efni símta
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
📅 17.09.2026 👁️ 1
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta
Skeifan versti staðurinn í borginni — óháð ferðamáta Skeif­an sker sig úr sem sá stað­ur í Reykja­vík sem borg­ar­bú­ar tengja oft­ast við nei­kvæða u...
Kaldi vestantil á landinu
📅 17.09.2026 👁️ 2
Kaldi vestantil á landinu
Það hvessir aðeins við suðvestur- og vesturströndina í dag. Heilt yfir verður þó frekar rólegt veður, sérstaklega fyrir austan þar sem getur þó dropað...
Hjólahvíslarinn og lög­reglan björguðu Latabæ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hjólahvíslarinn og lög­reglan björguðu Latabæ - Vísir
„Við komum á skrifstofuna í gærmorgun og sáum merki um mannaferðir og svo kom í ljós að það hafði ýmsu furðulegu verið stolið, eins og gömlu peysunni ...
Með lambúshettu að prófa sí­renur og gjallar­horn - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Með lambúshettu að prófa sí­renur og gjallar­horn - Vísir
Lögregla fór á vettvang til að skakka leikinn og bæði mál eru í rannsókn. Tvö innbrotsmál komu til kasta lögreglu og var gerandi í öðru tilvikinu, sem...
Segir augljóst að stjórnsýslan hafi brugðist
📅 17.09.2026 👁️ 2
Segir augljóst að stjórnsýslan hafi brugðist
„Svona á ekki að geta gerst, hvað þá í svona stóru sveitarfélagi með svona stórt verkefni sem skiptir alla sem koma að málinu gríðarlega miklu máli,“ ...
Kosið að horfa fram hjá vandamálunum
📅 17.09.2026 👁️ 0
Kosið að horfa fram hjá vandamálunum
„Svona á ekki að geta gerst, hvað þá í svona stóru sveitarfélagi með svona stórt verkefni sem skiptir alla sem koma að málinu gríðarlega miklu máli,“ ...
„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“ - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 1
„Ég ætlaði í lög­fræði en tón­listin tók völdin“ - Vísir
Magnús Jóhann er alltaf með mörg járn í eldinum hvort sem það eru eigin tónsmíðar, samstarf við aðra tónlistarmenn, aragrúi gigga eða skipulagning á t...
Lögreglan rannsakar tvenn slagsmál og bað mann um að hætta að þeyta gjallarhorn í bílakjallara
📅 17.09.2026 👁️ 1
Lögreglan rannsakar tvenn slagsmál og bað mann um að hætta að þeyta gjallarhorn í bílakjallara
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar tvenn slagsmál, hvort í sínum borgarhlutanum. Í öðru tilfellinu áttust þrír menn við á bensínstöð í vesturhlu...
Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Hótar háum tollum og að hætta við­skiptum við ESB - Vísir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, bauð í gærmorgun Kanada að verða aukaaðildarríki ESB. Mark Carney, forsætisráðherr...
Samþykkja frumvarp um refsiaðgerðir kennt við Lindsey Graham
📅 17.09.2026 👁️ 2
Samþykkja frumvarp um refsiaðgerðir kennt við Lindsey Graham
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Reuters segir 262 þingmenn hafa greitt atkvæði me...
Lög­reglan leitar tveggja drengja frá Borgar­nesi - Vísir
📅 17.09.2026 👁️ 2
Lög­reglan leitar tveggja drengja frá Borgar­nesi - Vísir
Szymon er 165 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með stutt dökkt hár. Hann var klæddur í svarta peysu, svartar gallabuxur og svarta skó. Cezary fór frá...
Gamlir íslenskir peningaseðlar seldust fyrir milljónir á uppboði
📅 17.09.2026 👁️ 2
Gamlir íslenskir peningaseðlar seldust fyrir milljónir á uppboði
Íslenskir peningaseðlar seldust fyrir háar fjárhæðir á uppboði sænska uppboðsfyrirtækisins Postiljonen í gær.Margir þeirra voru sagðir mjög sjaldgæfir...
Nepal floods: Climate change likely contributed to glacier collapse, study finds
📅 17.09.2026 👁️ 2
Nepal floods: Climate change likely contributed to glacier collapse, study finds
More than 1,400 people were killed and thousands remain missing following the deluge on 26 August.
Afghan inquiry into alleged SAS war crimes has already cost £58m, MOD figures show
📅 17.09.2026 👁️ 2
Afghan inquiry into alleged SAS war crimes has already cost £58m, MOD figures show
The inquiry has been running for more than three and a half years but has yet to publish any findings.
Palace in war of words with Earl Spencer over book's claim on Charles and Diana
📅 17.09.2026 👁️ 2
Palace in war of words with Earl Spencer over book's claim on Charles and Diana
The row threatens to overshadow a very crowded day for the royals - with the King and Princes William and Harry all attending events.
Austin Tice: Assad regime planned US journalist's kidnap for weeks, BBC finds
📅 17.09.2026 👁️ 2
Austin Tice: Assad regime planned US journalist's kidnap for weeks, BBC finds
Austin Tice’s abduction was approved by Syria’s former leader Bashar al-Assad, a source claims.
Hertfordshire boy, 13, is new voice of Thomas the Tank Engine
📅 17.09.2026 👁️ 0
Hertfordshire boy, 13, is new voice of Thomas the Tank Engine
A new Thomas series also stars The Gentleman actor Henry Golding.
Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð
📅 17.09.2026 👁️ 1
Greining á tönnum sýnir að grameðlur voru með heitt blóð
Vísindamenn hafa staðfest áratugagamla kenningu um að grameðla eða Tyrannosaurus rex hefði verið með heitt blóð. Þegar steingervt fótspor eðlunnar fan...
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur piltum
📅 17.09.2026 👁️ 3
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur piltum
Lögreglan á Vesturlandi leitar að tveimur unglingspiltum, Cezary Kobiela sem er 15 ára og Szymon Suchecki 14 ára. Þeir fóru frá heimilum sínum í Borga...
Abbas fær ekki vegabréfsáritun til að ávarpa Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
📅 17.09.2026 👁️ 2
Abbas fær ekki vegabréfsáritun til að ávarpa Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
Bandarísk yfirvöld hafa synjað Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, um vegabréfsáritun svo hann geti sótt Allsherjarþing Sameinuðu þ...
OpenAI sets plan to disclose safety incidents and reveals more issues
📅 17.09.2026 👁️ 2
OpenAI sets plan to disclose safety incidents and reveals more issues
The firm also announced a new system to track, investigate and disclose cases of models misbehaving, or "misalignment".
Trump ekki ánægður með að Kanada fái aukaaðild að Evrópusambandinu
📅 17.09.2026 👁️ 4
Trump ekki ánægður með að Kanada fái aukaaðild að Evrópusambandinu
Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að slíta á viðskiptatengsl við ríki Evrópusambandsins fari svo að Kanada öðlist aukaaðild að sambandinu. Hann sag...
Robert Kraft says Ed Sheeran asked him to donate $2m to aid after Macklemore backlash
📅 17.09.2026 👁️ 4
Robert Kraft says Ed Sheeran asked him to donate $2m to aid after Macklemore backlash
It comes after Macklemore pledged $1m to Palestinian causes, challenging the tycoon to match the sum.
UK prosecutors file for extradition of the Tate brothers from the US
📅 17.09.2026 👁️ 4
UK prosecutors file for extradition of the Tate brothers from the US
The brothers are facing a total of 59 charges in the UK, including rape. Both men deny any wrongdoing.
Jarðskjálftahrina við Reykjanestá hefur færst nær landi
📅 17.09.2026 👁️ 3
Jarðskjálftahrina við Reykjanestá hefur færst nær landi
Jarðskjálftavirkni færðist í aukana að nýju suðvestur af Reykjanestá laust fyrir miðnætti. Hrinan hefur færst nær landi en hún var í gær og flestir sk...
Eldflaugaárásir á Kyiv og Odessu
📅 17.09.2026 👁️ 4
Eldflaugaárásir á Kyiv og Odessu
Háværar sprengingar hafa kveðið við í úkraínsku höfuðborginni Kyiv eftir að hermálayfirvöld vöruðu við yfirvofandi eldflaugaárás Rússlandshers. Yfirvö...
Lena Dunham announces birth of first baby via surrogacy
📅 17.09.2026 👁️ 4
Lena Dunham announces birth of first baby via surrogacy
The writer and actress announced the birth of her daughter in an op-ed published by Vogue on Wednesday.
Róttækar breytingar myndu jafna atkvæðavægi
📅 17.09.2026 👁️ 3
Róttækar breytingar myndu jafna atkvæðavægi
Tillögur um stórfjölgun jöfnunarsæta myndu jafna atkvæðavægi milli kjördæma en hafa um leið mikil áhrif á þingmannafjölda þeirra. Hafsteinn Birgir Ein...
Trump brást ókvæða við stýrivaxtahækkun Seðlabankans
📅 17.09.2026 👁️ 5
Trump brást ókvæða við stýrivaxtahækkun Seðlabankans
Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti í gær, fyrsta sinni síðan árið 2023 og vakti þannig reiði Bandaríkjaforseta. Donald Trump forseti hafði kr...
UK weather: At least seven months of relentless rain needed to end drought in England
📅 17.09.2026 👁️ 4
UK weather: At least seven months of relentless rain needed to end drought in England
Almost 75% of England remains in drought following an exceptionally dry spring and summer.
New hope for breast cancer patients as life-extending drug now on NHS in England
📅 16.09.2026 👁️ 3
New hope for breast cancer patients as life-extending drug now on NHS in England
Enhertu, which can give patients an extra seven months to live on average, has been prescribed in Scotland for more than two years and is available.
Snapchat 'willing to implement' daily time limits for children, boss tells BBC
📅 16.09.2026 👁️ 5
Snapchat 'willing to implement' daily time limits for children, boss tells BBC
Evan Speigel says it would be "an important step forward for the industry" in an interview with the BBC.
Snapchat considering daily time limits for teenagers, boss tells BBC
📅 16.09.2026 👁️ 3
Snapchat considering daily time limits for teenagers, boss tells BBC
Evan Spiegel says it would be "an important step forward for the industry" in an interview with the BBC.
Snapchat open to putting time limits on teens, boss tells BBC
📅 16.09.2026 👁️ 4
Snapchat open to putting time limits on teens, boss tells BBC
Evan Spiegel says it would be "an important step forward for the industry" in an interview with the BBC.
Interest rates hold expected but Bank of England facing tough choices
📅 16.09.2026 👁️ 4
Interest rates hold expected but Bank of England facing tough choices
Forecasts of further rises in the inflation rate mean some analysts expect the Bank to act by the end of the year.