Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi. Reuters segir 262 þingmenn hafa greitt atkvæði með frumvarpinu og 159 gegn því.
Meðal annars má þar finna heimild til að leggja allt að hundrað prósenta toll á vörur frá löndum sem kaupa rússneska olíu og gas, þar á meðal Kína og Indland. Öldungadeildin hefur þegar samþykkt aðgerðirnar og nú kemur það til kasta Donalds Trump forseta að staðfesta lögin með undirskrift sinni.
Greinendur líta svo á að forsetinn geti hagnast á lagasetningunni í aðdraganda þingkosninganna á miðju kjörtímabili hans í nóvember. Gagnrýnendur óttast að lögin veiti Trump of frjálsar hendur í tollamálum og geti orðið til að hækka verðlag enn frekar í Bandaríkjunum.
Stuðningsmenn segjast ekki óttast það, enda séu heimildirnar takmarkaðar. Frumvarpið var nefnt eftir öldungadeildarþingmanninum Lindsey Graham sem lést í júlí, 71 árs að aldri. Hann var einn þeirra sem sömdu frumvarpið í apríl 2025 og hafði barist ötullega fyrir því að samþykktar yrðu þyngri álögur á Rússa enda einarður stuðningsmaður Úkraínu.
Þangað fór hann oft og átti einmitt fund með forsetanum Volodymyr Zelensky daginn áður en hann dó. Reuters segir Graham hafa tryggt stuðning forsetans við frumvarpið skömmu fyrir andlátið.