Stór hópur for­eldra taki skóla­skyldu ekki al­var­lega - Vísir

Stór hópur for­eldra taki skóla­skyldu ekki al­var­lega - Vísir

Stór hópur for­eldra taki skóla­skyldu ekki al­var­lega - Vísir

Ragnheiður skrifaði grein á Vísi í gær. Ragnheiður segir vanta umræðu um það sem raunverulega hefur valdið skerðingu á færni nemenda og valdi hættumerkjum sem bent er á í dag. Í grein sinni fer hún yfir þá þætti sem hún telur hafa haft áhrif.

Fyrst nefnir hún aðalnámskrá grunnskóla sem tók gildi árið 2011. Þar hafi verið kynnt mjög opin hæfniviðmið og þannig horfið skýr námsmarkmið eftir greinum.

„Sum þessara hæfniviðmiða voru svo háleit, eins og t.d. í náttúrufræði þar sem David Attenborough hefði líklega ekki uppfyllt skilyrði fyrir A, að kennurum féllust algjörlega hendur við að lesa þau. Skilaboðin sem kennarar fengu voru að það ættu eftir að koma skýrari matsviðmið í grunngreinum sem myndu skýra málið en 15 árum seinna hafa þau ekki ennþá komið, mér vitanlega a.m.k.,“ segir Ragnheiður og að til að bregðast við því hafi hver og einn skóli brugðist við með því að setja sín eigin matsviðmið.

Það þýði að engin miðstýring sé á því hver grunnhæfnin eigi að vera í hverju fagi og því undrast Ragnheiður að fólk sé hissa á því að nemendur komi ekki vel út í alþjóðlegum samanburði.

Hægt að virða sérstöðu með samræmd viðmið

Ragnheiður bendir í öðru lagi á að í kringum innleiðinguna á nýrri aðalnámskrá 2011 hafi mikið verið fjallað um sérstöðu hvers skóla og að þeir ættu að fá tækifæri til að laga námið að heimabyggð. Hún segir það hljóma ofsalega vel á blaði og virki vel fyrir samfélagsfræði og náttúrufræði en fyrir fög eins og efna- og eðlisfræði og líffræði þurfi skólarnir uppgefin matsviðmið svo kennarar viti hvað þeir eigi að kenna nemendum til að uppfylla kröfur sem eru gerðar alþjóðlega.

Hún segir mjög mikilvægt að vinna þessi viðmið í samvinnu við framhaldsskólana svo nemendur komi nægilega vel undirbúnir þangað.

Þegar komi að íslensku sé umhverfið allt annað en fyrir tuttugu árum og segir Ragnheiður hvergi eins mikilvægt og að setja niður áherslur í námi.

„Það er ekki lengur nóg að kenna litlu barni að lesa heldur þarf að viðhalda lestrinum sem er verkefni í dag því lestur er ekki lengur afþreying hjá nemendum. Síðan þarf að kenna orðaforðann, þar sem hann kemur ekki lengur „af sjálfu sér“ eins og hann gerði þegar umhverfið var öðruvísi. Því ef þú skilur ekki orðin sem þú lest, þá nærð þú ekki efninu sem þú ert að lesa,“ segir Ragnheiður og þannig haldist þetta tvennt í hendur.

„… breytingar á hæfni nemenda í læsi eru ekki eingöngu skortur á lestrarfærni heldur miklu frekar skortur á orðaforða og þjálfunarleysi.“

Þá spyr Ragnheiður af hverju það sé svo mikið tabú að tala um samræmd próf við lok grunnskóla.

„Próf þar sem nemendur fá raðtölu en enga einkunn? Ég skildi aldrei þessa tilfærslu á samræmdum prófum frá 10. bekk niður í 9. bekk á sínum tíma. Af hverju var í lagi að mæla við lok yngsta stigs og við lok miðstigs en ekki efsta stigs?“ spyr hún og bendir á að fyrir nemendur séu lagðar alþjóðlegar kannanir og því ætti ekki að vera svo mikill munur á því að vera með okkar eigin líka.

„Sveitarfélög og skólar eiga rétt á því að fá samræmdar tölur til að meta hvernig gangi að uppfylla grunnmenntun í grunnfögunum. Við getum ekki alltaf beðið með kvíðahnút í maganum eftir næstu niðurstöðum Pisa þar sem allt landið er undir. Til að sveitarfélög og skólar geti bætt árangur sinn í hæfni nemenda þurfa að vera til einhverjar mælingar sem gefa vísbendingu um stöðuna,“ segir Ragnheiður.

Matsferill verði fjársveltur eins og annað

Hún segir tilkomu matsferils af því góða og hann geti mögulega þróast út í að vera það tæki sem skólarnir þurfa en þá þurfi að hætta að vera hrædd við að mæla við lok 1. bekkjar. Ragnheiður segist vona að það þróist þannig en hún óttist að verkfærið verði fjársvelt og verði því aldrei fugl né fiskur.

Ragnheiður nefnir í þriðja lagi námsgagnaframleiðslu sem hafi varla verið nokkuð frá því að hún byrjaði að kenna fyrir 30 árum. Ragnheiður segir þessu hægt að breyta, það þurfi aðeins vilja og fjármagn.

„Við erum agnarlítið tungumálasamfélag og því er hlutfallslega dýrara fyrir okkur að framleiða námsgögn en aðra. Þá verðum við að hugsa þetta öðruvísi og gera annað og meira úr peningunum. Það þarf ekki að finna upp hjólið. Það er hægt að nota það sem er til og breyta og bæta. Tilkoma gervigreindar ætti t.d. að geta sparað okkur heilmikinn tíma í allri námsefnisgerð,“ segir hún. Sem dæmi væri hægt að gefa kennurum námsgerðarleyfi, eins og þeir fái námsleyfi, til að vinna nýtt efni eða uppfæra það sem til er.

Þörf á að endurnýja öll námsgögn

Til að byrja með væri þetta mikið átak og líklega þyrfti marga kennara til að endurnýja nánast allt námsefni en þannig væri hægt að snúa algjörlega við blaðinu á nokkrum árum.

„Þetta kostar auðvitað peninga en það myndi skila sér margfalt til baka í bættum gæðum skólastarfs. Síðan þegar frá liði yrði þetta meira viðhaldsvinna og því kostnaðarminna. En áður en hægt er að fara í þessa vinnu þarf að vera alveg skýrt hvaða hæfni- og matsviðmið eigi að liggja að baki í hverju fagi fyrir sig í grunnskólum landsins til að hægt sé að tryggja að námsefnið uppfylli þau skilyrði,“ segir Ragnheiður.

Í fjórða og síðasta lagi nefnir Ragnheiður að þörf sé á samfélagslegri breytingu og að foreldrar verði að forgangsraða menntun barna sinna.

Skólaskyldan ekki virt

„Það er skólaskylda í landinu og hún er af ástæðu. Það er allt of stór hópur foreldra sem tekur skólaskyldu ekki alvarlega. Allt of stór hópur sem án nokkurrar umhugsunar tekur barnið sitt úr skóla í lengri eða skemmri tíma og skilur svo ekkert í því af hverju skólagangan gengur ekki nógu vel,“ segir hún og að fjarvera hafi mikil áhrif á námsárangur en dragi einnig úr gæðum kennslu fyrir þau sem eftir eru.

„Tómstundir eru teknar fram fyrir skóla og eiginlega bara allt sem ekki er skólastarf gengur orðið fyrir hjá allt of stórum hópi nemenda. Foreldrar vilja margir hverjir helst ekkert vita af námi barna sinna og mótmæla því að nemandi í 1.-2. bekk komi heim með lítið verkefni til að vinna með foreldrum sínum í hverri viku. Eitthvað sem var alltaf talið mikilvægt skref í að tengjast námi barna og láta þau finna að það sem þau eru að gera skiptir máli. Þannig upplifir barnið að foreldrum finnist merkilegt hvað þau eru að gera sem er mikilvægt fyrsta skref í námi og hjálpar nemendum að bera virðingu fyrir námi. Heimalestur er líka orðin kvöð á heimilum og það er því pínu þannig að skóli virðist ekki mega taka neinn tíma hjá allt of stórum hópi foreldra,“ segir Ragnheiður og að fólk sé of upptekið af hraðanum í lífinu.

„Skólaganga barna er einhvern veginn orðin ekki nógu merkileg hjá allt of stórum hópi foreldra. Barninu á að líða vel og ganga vel í skólanum en skólinn má samt helst ekki vera fyrir öðru heimilislífi.“

Hún segir þjóðirnar í kring ekki eiga við þetta vandamál að stríða.

„Þar er ekki litið á skóla sem eitthvað sem er fyrir í fjölskyldulífinu. Þar er skóli hluti af fjölskyldulífinu,“ segir Ragnheiður og að foreldrar þurfi að átta sig á því að þegar þau eignast barn sé skólaganga barnsins hluti af því og að henni þurfi að sinna.

„Aðgangur foreldra að skóla og upplýsingum tengdum honum hefur aldrei verið eins mikill og að ná sambandi við kennara aldrei eins auðvelt. Samt er það þannig að allt of stór hópur foreldra nennir ekki að fylgjast með skólagöngunni hjá börnunum sínum eða sannfærir sjálfan sig um að það hafi ekki tíma til þess af því að allt annað er mikilvægara. Á þessu þarf að verða breyting. En þetta má auðvitað ekki segja upphátt,“ segir hún að lokum.

#foreldra #hópur #skólaskyldu #stór #taki


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262881513d/stor-hopur-foreldra-taki-skolaskyldu-ekki-alvarlega

📰 Aðrar fréttir

Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 0
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 0
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 0
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 0
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 1
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
📅 29.06.2026 👁️ 1
101 árs og mætir fjórum sinnum í viku í ræktina
Íbúar á Sléttunni í Fossvogi, einu Hrafnistuheimilanna, eru duglegir að hreyfa sig og gera alls konar æfingar, hvort sem það er í sal eða tækjasal. Þa...
Monaco explosion injures three people, French media report
📅 29.06.2026 👁️ 1
Monaco explosion injures three people, French media report
The blast at a residential building was "very likely an attack", Monaco's head of government tells AFP.
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vara­maður á Ísa­firði verður sveitar­stjóri Súðavíkur - Vísir
Greint er frá ráðningunni á heimasíðu Súðavíkurhrepps og segir þar að undanfarin ár hafi Elísabet starfað sem fjármála- og skrifstofustjóri hjá Fiskvi...
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kenna stafsetningarvillu um samskiptaleysi við Landhelgisgæsluna
Paul Watson samtökin segjast hafa strax orðið við beiðni Landhelgisgæslunnar um að senda tilkynningar um staðsetningu Bandero á klukkutíma fresti með ...
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gólfhiti í nýjum húsum skapar kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér
Gólfhiti í nýjum húsum virðist skapa kjöraðstæður fyrir silfurskottur til að fjölga sér, segir meindýraeyðir.„Fólk er alltaf jafnsvekkt þegar það hrin...
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
📅 29.06.2026 👁️ 1
Domestic murder sentence could see 10-year sentence increase
The changes mean the 15-year starting sentence could be increased to 25 years to be in line with other murders.
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
📅 29.06.2026 👁️ 1
Refugees will be told to repay £10,000 under new asylum rules
Ministers will be given powers to recover costs from adults who have received asylum support under new laws.
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
📅 29.06.2026 👁️ 1
Long-delayed defence investment plan to be published on Tuesday
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Long-delayed defence investment plan to be published
📅 29.06.2026 👁️ 0
Long-delayed defence investment plan to be published
The defence investment plan will set out how billions will be spent on equipping the UK Armed Forces.
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Orðinn Há­skóli Ís­lands á Hólum - Vísir
Í byrjun júní samþykkti Alþingi frumvarp um háskólasamstæður, lög sem öðlast gildi þann 1. júlí. Háskóli Íslands verður þannig að samstæðuháskóla og f...
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
📅 29.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026 resuts: Naomi Osaka dazzles in kimono outfit before opening victory
Naomi Osaka has long been renowned for dazzling crowds with her on-court outfits - but making that compatible with Wimbledon's all-white dress code re...
Lést af völdum al­næmis - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lést af völdum al­næmis - Vísir
Daveigh Chase lést fyrr í þessum mánuði og að sögn umboðsmanns hennar hafði hún látist af völdum blóðsýkingar í kjölfar heilahimnubólgu. Hins vegar ha...
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Gagn­rýnir að skipinu hafi ekki verið vísað frá - Vísir
Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, hefur fylgt skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir síðan í gærkvöldi innan íslenskrar lögsögu...
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Al­þjóð­legi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmti­legt“ - Vísir
Af hverju eruði að drullumalla í dag? „Af því það er drullumallsdagurinn í dag,“ sagði ein á leikskólanum Hofi. Hárrétt. Alþjóðlegi drullumallsdagurin...
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Svarthöfði skrifar: Útibú Sjálfstæðisflokksins gefur út smásögu
Út er komin ný smásaga Viðskiptaráðs um hrakfarir ríkisstjórnarinnar á liðnum þingvetri. Svarthöfða virðist talsmaður útgáfunnar einkar vel fallinn ti...
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
📅 29.06.2026 👁️ 1
Kannabisræktunin í Reykholti hluti af stærri rannsókn
Lögreglu grunar að þeir sem voru að baki kannabisræktun í Reykholti hafi staðið að tveimur öðrum slíkum ræktunum sem voru stöðvaðar á suðvesturhorninu...
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Fjar­lægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás - Vísir
Gabriel Garland, 24 ára keppandi í Love Island, var fjarlægður úr nýjustu þáttaröð raunveruleikaþátta sjónvarpsstöðvarinnar ITV en hann kom fram í þæt...
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Daveigh Chase, The Ring and Lilo & Stitch star, died of Aids
Substance abuse was listed as another significant condition the former child star was experiencing.
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lilo & Stitch star Daveigh Chase's cause of death was Aids
The actress, who also crawled out of a TV in horror film The Ring, passed away in LA this month, aged 35.
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
📅 29.06.2026 👁️ 1
Erfitt að ímynda sér eyðilegginguna í Venesúela
Helen Hafgnýr Cova, rithöfundur og útgefandi, kom hingað til lands frá Venesúela árið 2016. Hún segir að erfitt hafi verið að ná í ættingja og vini þa...
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Þetta eru pjöllu-klútar“ - Vísir
Það var líf og fjör á Þingvöllum og gestir í miklum gír. Gugga spurði þá að ýmsum spurningum, þar á meðal hvort þeir gætu nefnt aðra meðlimi Kaleo á n...
Burnham boðar nýja tíma: „Nr. 10 Norður verður miðpunktur“
📅 29.06.2026 👁️ 1
Burnham boðar nýja tíma: „Nr. 10 Norður verður miðpunktur“
Andy Burnham ætlar að leiða tíu ára verkefni til að auka lífsgæði í Bretlandi og ætlar að gera útibú fyrir embætti forsætisráðherra í Manchester. Þett...
Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Sjö­tti lést af sárum sínum á sjúkra­húsi - Vísir
Hin látnu voru öll starfsmenn æskulýðsmiðstöðvarinnar samkvæmt umfjöllun BBC. Fimm þeirra voru skotin til bana í miðstöðinni en sjötta fórnarlambið lé...
Stóru skriðjöklarnir rýrna mest
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stóru skriðjöklarnir rýrna mest
Flestir jökulsporðar íslenskra jökla hörfuðu á jökulárinu 2024–2025 samkvæmt mælingum sjálfboðaliða Jöklarannsóknafélagsins. Breytingin er einna mest ...
Will Andy Burnham's devolution plan raise economic growth?
📅 29.06.2026 👁️ 1
Will Andy Burnham's devolution plan raise economic growth?
BBC Verify has looked at what impact further devolution could be expected to have on the UK.
Svavar Páls­son ráðinn sveitar­stjóri Húnabyggðar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Svavar Páls­son ráðinn sveitar­stjóri Húnabyggðar - Vísir
Greint er frá ráðningunni á vef Húnabyggðar en þar segir að Svavar sé fæddur og uppalinn á Blönduósi. Hann hafi gegnt starfi sýslumanns á Norðurlandi ...
Hitamet falla ítrekað í Evrópu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Hitamet falla ítrekað í Evrópu
Að minnsta kosti 1.300 dauðsföll er hægt að rekja til hitabylgjunnar í Evrópu síðustu daga. Þetta fullyrðir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Aftur er spáð...
„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Ekkert sér­stak­lega á­nægð“ þegar hún sá hnífinn - Vísir
„Þegar hún sá hann [hnífinn] nefndi hún að það hefði ekki verið það sem hún hafði hugsað sér. En hún hafði ekki um annað að velja,“ sagði Ming fyrir d...
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Reiðubúnir að leggja lífið að veði“
Leiðangursstjóri á Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, segir skipverja tilbúna að vera eins lengi og þörf er á við Íslandsstrendur til að stöðva hv...
Lönduðu tveimur langreyðum
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lönduðu tveimur langreyðum
Hvalveiðiskipið Hvalur 9 landaði tveimur langreyðum í hvalstöðinni í Hvalfirði laust fyrir klukkan 18 í dag.Samkvæmt mbl.is hafa níu dýr verið veidd á...
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Margrét Kristín skipuð lög­reglu­stjóri á Suður­nesjum - Vísir
Greint er frá ráðningunni á vef Stjórnarráðsins. Þar er greint frá því að Margrét Kristín hafi verið skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2...
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ - Vísir
Sigurjón segir að ef Íslendingar fari með óbreytt kerfi inn í Evrópusambandið sé ekkert sem komi í veg fyrir að erlend fyrirtæki geti keypt upp „íslen...
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Lokar fyrir að­gengi að Reykja­fossi og Fossalaug - Vísir
„Þetta er orðið gott í þeirri mynd sem þetta er núna,“ segir Dagur Torfason, landeigandi að Fossalaug og Reykjafossi, í samtali við fréttastofu. Landi...