Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Ibiza skvísurnar
Áhrifavaldapæjurnar Tara Sif, Birgitta Líf, Svanhildur Heiða og Telma Fanney hafa verið mjög duglegar að deila myndum frá stuðdögum á Ibiza. Þær fóru meðal annars á tónleika með plötusnúðinum Hugel og fengu VIP passa þar sem þær dönsuðu við hlið hans bak við DJ græjurnar.
Grísk gyðja
Fegurðardrottningin Sóldís Ívarsdóttir sem var kosin Miss Earth Air árið 2025 elskar Grikkland og nýtur sín vel í sólinni þar.
Seoul skvísa
Stórstjarnan Laufey Lín er á tónleikaferðalagi um allan heim og átti góðar stundir í Seoul í Suður-Kóreu.
Sæt í Stóra eplinu
TikTok stjarnan Embla Wigum átti algjört gellumóment í New York á dögunum.
Bali bombur
Áhrifavaldarnir og vinkonurnar Eva Einarsdóttir og Sunneva Einarsdóttir eru staddar á Balí og virðast sannarlega skemmta sér konunglega þar.
Padel pæjur
Vinkonurnar, nöfnurnar og dansararnir Sóley Þórunnardóttir og Sóley Jóhannesdóttir skelltu sér í padel í stíl í bláum íþróttasettum.
Litli stóri pabbi
Poppstjarnan Aron Can er í góðum fíling en hann er meðlimur IceGuys sveitarinnar og þeir voru á dögunum í Nashville að skjóta bíómynd.
Blómarós í íslensku sumri
Athafnakonan Sofia Elsie Nielsen birti sæta sumarmynd þar sem hún klæddist fallegum blómabol.
Miðbæjarpæjur
Ofurskvísan og þjálfarinn Tinna Haraldsdóttir birti vinkonumynd með Sölku Kristínu í sólinni í bænum.
Kristín Péturs á flakki
Leikkonan og áhrifavaldurinn Kristín Pétursdóttir er á suðrænum slóðum í sumarskapi.
Útskrifuð
Dansarinn María Höskuldsdóttir útskrifaðist með BA gráðu í félagsráðgjöf og klæddist æðislegum kjól.
Birnir og bróðir
Rapparinn Birnir og bróðir hans Óli fögnuðu um helgina í sólinni með góðum vinum.
Hvítt þema á Spáni
Elísa Gróa fyrrum Ungfrú Ísland fór í hvítan klæðnað fyrir þemapartý á Spáni.
IceGuys: The Movie
Rúrik Gíslason, Árni Páll, Jón Jónsson, Aron Can og Frikki Dór pósuðu ískaldir við tökur á kvikmyndinni um strákasveitina.
Sumarið er komið
Markaðspæjan og grafíski hönnuðurinn Embla Óðins er í skýjunum með sumarið og átti góða helgi með hennar heittelskaða Jóhanni Frazier.
Brúðkaup í sólinni
Áhrifavaldurinn Linda Ben átti dásamlega helgi á Spáni þar sem hún fagnaði ástinni í brúðkaupi vina hennar Huldu og Jóns Óskars.
Afmælis-Selma
Tónlistarkonan Selma Björnsdóttir átti afmæli og fagnaði með því að skella sér í brúðkaup hjá Björk Eiðsdóttur og Karli Ægi Karlssyni í sveitinni.
Margarita í bikiníi
Áhrifavaldurinn og ofurpæjan Brynhildur Gunnlaugsdóttir skálaði í margarítu í sólinni.
Draumadagur
Markaðsfræðingurinn Hildur Sif Hauksdóttir átti draumadag í Reykjavíkurborg.
Móa í Milos
Skvísan og áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir heimsótti eyjuna Milos á Grikklandi og var ekki svikin.