Salka greindi frá þessari miður skemmtilegu reynslu á samfélagsmiðlum í gær, beint eftir þriggja sýninga dag í Hörpu. Pestin kom á versta tíma því sýningin er svo ekki sýnd aftur fyrr en 4. og 5. desember í Hofi á Akureyri og svo í Hörpu 20. desember.
Blaðamaður heyrði í Sölku, sem fer með hlutverk Norðurljósadrottningarinnar í sýningunni, í morgun en hún var þá nýbúin að jafna sig á gubbupestinni.
„Þetta er ein af fáum vinnum þar sem að maður verður að láta sig hafa þetta einstaka sinnum. Ég er alltaf að monta mig af því að verða sjaldan veik en næli mér einstaka sinnum í gubbupest, samt eru orðin kannski tvö-þrjú ár síðan það gerðist síðast,“ segir Salka.
„Við erum búin að vera æfa með þennan yndislega krakkahóp, leikstjóra og svo er dóttir mín þarna með mér í þessari sýningu. Það er búið að vera yndislegt að eyða jólatörninni með henni.“
Gubbupestin reið yfir aðfaranótt sunnudagsins 22. nóvember, nokkrum klukkutímum fyrir sýningardag í Eldborg í Hörpu.
„Það voru þrjár sýningar þennan dag, svo erum við á Akureyri eftir tvær vikur og tveimur vikum eftir það erum við aftur í Hörpu. Þannig þetta var ótrúleg tímasetning hjá gubbupestinni, alveg fáránleg,“ segir Salka.
Þurrkaði munnvikin og harkaði af sér
„Ég vaknaði um nóttina og byrjaði að æla. Svo mætti ég klukkan níu í Hörpu og það var rennsli þannig við sýndum sýninguna í rauninni fjórum sinnum yfir daginn. Ég hélt að þetta væri liðið hjá og þyrfti að þrauka daginn hálfósofin en það var ekki svo.“
Hún hafi haldið áfram að gubba út daginn.
„Ég fór inn á svið, þurrkaði munnvikin og hélt andliti. Svo hneigðum við okkur og ég hljóp beint aftur inn á herbergi, líka til að smita ekki allan krakkaskarann. Kom svo fram rétt áður en ég átti stíga á svið, gerði það og endurtók leikinn þrisvar sinnum yfir daginn,“ segir hún.
Stóð það ekkert tæpt?
„Það stóð alveg tæpt, ég þurfti stundum að harka af mér og kyngja smá,“ segir hún.
„Þetta var hrikalega erfitt. Ég fór heim eftir að sýningum lauk, lagðist upp í rúm og svaf í næstum sólarhring. Núna er ég að ná þessu úr mér,“ segir Salka um pestina.
Þú ert tilbúin fyrir Akureyringa í byrjun desember.
„Ég á eftir að leika á als oddi bæði baksviðs og á sviði. Ég verð svo hamingjusöm að vera laus við þetta,“ segir Salka.
Aldrei lent í neinu sambærilegu
„Við erum með yndislegt fólk baksviðs, allir þeir sem standa að sýningunni og þeir sem eru að hugsa um börnin, það eru svo ótrúlega mörg börn sem taka þátt í þessu. Það var ælufata í hliðarvængjunum tilbúin. En það hefði náttúrulega verið smá fyndið ef Norðurljósadrottningin hefði spúið þarna á sviðinu,“ segir Salka.
Það hefði aukið á áhrif sýningarinnar.
„Krakkarnir hefðu ekki gleymt sinni fyrstu leikhúsferð. Ég held að það séu mörg börn að koma í leikhús í fyrsta sinn á þessa sýningu. Við hefðum allavega hlegið að því í einhverri framtíð, ekki strax kannski,“ segir Salka.
Þú hefur ekki smitað neinn?
„Ekki svo ég viti. Allavega engan á heimilinu. Maðurinn minn hugsaði ótrúlega vel um mig, var tilbúinn með salt og drykki þegar ég kom heim og svo var búið að skipta á öllum rúmum,“ segir hún.
„Þetta var ótrúleg tímasetning, ég trúði ekki að þetta væri að gerast. Ég vaknaði klukkan hálf fjögur um nóttina og byrjaði að æla og var alveg ósofin. Svo þegar fjölskyldan mín vaknaði, horfði ég á manninn og sagði: Hjálp, hvað á ég að gera?“
Hefurðu lent í einhverju svipuðu, gubbupest eða annarri pest?
„Ekki nálægt því. Ég hef auðvitað misst röddina en þá tekur maður steratöflur og það eru einhver bjargráð við flestu. En það er fátt sem lætur þetta fara þó það sé ýmislegt sem getur látið manni líða betur. Ég prófaði allar heimaremedíur, fólk nefndi epli, eplasafa og einhver sölt. Ég fékk mér það allt yfir daginn en það leið ekki hjá fyrr en ég var komin heim,“ segir Salka að lokum.