Sylvester Stallone segir að útlitið hafi orðið þráhyggja þegar hann lék Rocky og Rambo. Hann hafi þróað með sér átröskun og notað stera til að halda sér í því formi sem hann taldi hlutverkin krefjast. Nú, áttræður að aldri, segir hann álagið á líkamann hafa kostað sitt, en tilefnið er nýútkomin ævisaga hans, The Steps.
Stallone ræðir þetta í nýju viðtali við The New York Times. Hann segir líkama sinn hafa verið eins konar brynju. Eftir því sem persónurnar breyttust vildi hann sjálfur verða vöðvastæltari og harðari í útliti, en metnaðurinn fór úr böndunum.
„Ég var með lotugræðgi“
„Þetta varð að þráhyggju. Mjög slæmri,“ segir Stallone. Hann segist hafa þróað með sér lotugræðgi og átt erfitt með að halda mat niðri þegar hann undirbjó Rocky III. Stundum hafi hann heldur ekki viljað halda honum niðri, svo upptekinn hafi hann verið af því að viðhalda útlitinu.
Að eigin sögn fór líkamsfituhlutfall hans niður í 2,6 prósent við gerð myndarinnar. Hann viðurkennir jafnframt steranotkun. Þegar spyrillinn spyr hann beint hvort hann hafi tekið stera svarar hann játandi og segir óraunhæft að ætla að viðhalda slíku útliti mánuðum saman án lyfja.
Segist hafa farið illa með líkamann
Stallone segir að það hafi fyrst veitt honum nokkurt frelsi frá kröfunni um að líta út eins og ósigrandi hasarhetja þegar hann lék heyrnarskertan lögreglumann í yfirþyngd í Cop Land. Hann segist þó hafa farið illa með líkama sinn á ferlinum.
Þegar hann telur upp þær aðgerðir sem hann hefur farið í minnist hann á níu bakaðgerðir, tvær aðgerðir á öxlum og þrjár samrunaaðgerðir á hálsi. Hann rekur þó ekki allar þær aðgerðir til steranotkunarinnar. Þegar hann lítur til baka segist hann hins vegar sjá eftir því að hafa sjálfur tekið að sér áhættuatriði í kvikmyndum sínum.