Stærsti barnaspítali Bandaríkjanna opnar „detransition clinic“

Barnaspítalinn í Texas (TCH) verður fyrsta bandaríska læknisstofnunin til að opna deild fyrir börn sem vilja hætta í trans-meðferðum, að sögn bandaríska dómsmálaráðuneytisins.
Þessi aðgerð er hluti af samkomulagi í áralangri rannsókn dómsmálaráðuneytisins og Ken Paxton, ríkissaksóknara Texas, á stærsta barnaspítala Bandaríkjanna vegna meintra falskra skýrslna sem áttu að tryggja kynstaðfestandi meðferðir barna, og haldið fram fram að væru öruggar.
Dómsmálaráðuneytið sagði í yfirlýsingu á föstudag að Barnaspítalinn í Texas hefði samþykkt að bjóða ekki lengur upp á kynleiðréttingarþjónustu, sem innihéldu m.a. kynþroskahemla og kynhormóna, fyrir ólögráða börn.
Miðstöðin, sem er staðsett í Houston, mun einnig greiða yfir 10 milljónir dala í skaðabætur og „tileinka milljónum í að veita læknisþjónustu fyrir börn sem hafa orðið fyrir tjóni vegna slíkra aðgerða,“ segir í yfirlýsingunni.
Paxton tilkynnti í sérstakri yfirlýsingu að TCH muni einnig reka fimm lækna, sem að hans sögn „sköðuðu sjúklingana með því að framkvæma hættulegar læknisfræðilegar aðgerðir í þeim tilgangi að „umbreyta“ þeim.“
Todd Blanche, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, fagnaði sáttinni, sem markar fyrstu niðurstöðuna í yfirstandandi rannsókn dómsmálaráðuneytisins á trans-þjónustu, og segir að hún „verndi viðkvæm börn, haldi þjónustuaðilum ábyrgum og tryggi að þeir sem hafa orðið fyrir barðinu á henni, fái þá umönnun sem þeir þurfa.“
„Dómsmálaráðuneytið mun nota öll tiltæk vopn til að binda enda á skaðlega og vanvirta iðkun svokallaðrar „trans-umönnunar“ fyrir börn,“ segir Blanche.
Sjúkrahúsið hefur neitað öllum ásökunum og sagði í yfirlýsingu að það hefði ákveðið að semja til að „vernda auðlindir okkar fyrir endalausum og kostnaðarsömum málaferlum“ og snúa aftur að því að einbeita sér að umönnun sjúklinga.
„Við erum stolt vitandi að við munum alltaf setja tilgang okkar ofar stjórnmálum og að við höfum og munum halda áfram að fylgja lögunum,“ segir í yfirlýsingunni.
The Guardian greinir einnig frá málinu, þar segir: „Í dag er stórkostlegur dagur í baráttunni gegn róttækri transhreyfingu, Þetta sögulega uppgjör endurspeglar stofnanalega og grundvallarmenningarlega breytingu frá róttækri hugmyndafræði um kyn.“
„Undir minni stjórn mun ég rannsaka og beita fullum krafti laganna gegn öllum sjúkrahúsum í Texas sem misnota börn með skaðlegum læknisfræðilegum íhlutunum til að „umbreyta“ börnum,“ sagði ríkisstjórinn.
Meira um málið má lesa á The Guardian.