Til stendur að stækka Mjóeyrarhöfn við Reyðarfjörð og verður allt að tíu milljörðum króna varið í uppbyggingu til ársins 2040.
Framkvæmdirnar voru kynntar á íbúafundi á Reyðarfirði í gær. Verkið verður unnið í áföngum en meðal annars stendur til að lengja hafnarkantinn um rúma fimm hundruð metra og stækka gámasvæðið. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir stækkunina verða mikla lyftistöng fyrir sveitarfélagið og Austurland allt.
„Umsvif fyrirtækja á svæðinu munu klárlega aukast með þessum framkvæmdum. Hér eru ýmis tækifæri til enn frekari aukningar á bæði starfsemi fyrirtækja og flutninga hér á svæðinu. Og þessi uppbygging mun klárlega styðja við fjölgun starfa og fjölgun íbúa hér á Austurlandi,“ segir Jóna Árný.