Formaður Málarameistarafélagsins telur stöðu greinarinnar góða eins og er en að blikur séu á lofti eftir sumarið. Formaður félags pípulagningameistara sagði í gær að óveðursský hrönnuðust upp í greininni sökum samdráttar á byggingamarkaði og félagsmenn væru þegar farnir að finna fyrir því.
„Ég get nú ekki alveg tekið undir það alveg að fullu leyti, hann er mjög svartsýnn þarna í þessu viðtali,“ segir Kristján Aðalsteinsson formaður Málarameistarafélagsins.
„En svo sannarlega eru blikur á lofti varðandi næsta haust.“
Hann telur að tímabundinn samdráttur verði í nýbyggingum, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, en viðhaldsmarkaður hafi þó stækkað mikið. Stór verkefni líkt og uppbygging nýja Landspítalans taki mikinn mannskap til sín.
Formaður Félags pípulagningameistara sagði í fréttum í gær að margir píparar væru að missa vinnuna. Helstu ástæður þess væru kólnun á byggingamarkaði vegna verðbólgu og hárra stýrivaxta.
„En um leið og verkefnin verða færri sem eru í útboði þá er slegist meira um þau og þá fara menn að teygja sig aðeins of langt niður og fá bara því miður ekki eins mikið út úr því eins og þeir þurfa að fá til að halda rekstri, það er hættulegt,“ segir Kristján.
Fram kom í fréttum í gær að píparar sem lokið hefðu námi ættu erfitt með að komast á samning. Kristján segir sömu stöðu því miður komna upp hjá málurum en að um tuttugu sveinar úrskrifist á hverju ári sem sé aukning miðað við síðustu ár.