Flugvél flaug á óþekktan fljúgandi hlut í um sex kílómetra fjarlægð frá flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi seint í gærkvöld. Hún lenti heilu og höldnu skömmu síðar.
„Flugvélinni var ætlað að lenda í Leipzig en hún þurfti að hætta við lendinguna,“ sagði talsmaður innanríkisráðuneytis Þýskalands á blaðamannafundi. „Hún klessti svo á óþekktan hlut,“ sagði hann og bætti við að hún hefði lent í Hannover. Minni háttar skemmdir voru á nefi vélarinnar.
Fundu dróna sem var hugsanlega hlaðinn sprengiefni
Skömmu síðar fannst dróni á flugvellinum, nærri fjórum úkraínskum flutningaþotum, sem meðal annars hafa verið notaðar til flutninga fyrir NATO. Þýska lögreglan staðfesti í dag að dróninn hefði verið búinn óhefðbundnum sprengi- og íkveikjubúnaði.
Þýska lögreglan sagði í morgun að sprengisveitardróni hefði verið notaður í aðgerðum lögreglu á flugvellinum í nótt. Talsmaður lögreglu segir almenningi ekki stafa nein hætta af drónanum.
Starfsemi flugvallarins var stöðvuð í nótt og nokkrar flugvélar sem voru á leið til lendingar voru sendar annað. Starfsemin færðist í eðlilegt horf í morgun. Önnur flugbrautin var þó lokuð vegna rannsóknar lögreglu.
Telja Rússa standa að baki drónaflugi
Drónar hafa reglulega flogið yfir flugvelli og herstöðvar í Þýskalandi og öðrum Evrópuríkjum á síðustu misserum.
Yfirvöld í Þýskalandi telja Rússa bera ábyrgð á mörgum þessara tilvika. Þau grunar að drónaflugið sé hluti af herferð skemmdarverka, njósna og upplýsingaóreiðu.
Búið er að uppfæra fréttina, fyrirsögn og mynd.