Mari hafði verið uppi á spítala í nokkra stund og hafði, að vanda, leyft fylgjendum sínum að fylgjast náið með ferlinu.
Mari hafði orð á því að fæðingarferlið væri dálítið eins og „bakgarðshlaup“ í einni færslunni.
Parið greindi frá því í janúarlok að þau ættu von á barni og greindi frá því að von væri á dreng í febrúar. Mari og Njörður hafa fjallað opinskátt um tilraunir sínar til að eignast barn síðastliðin ár. Í desember 2024 ræddi blaðamaður Vísis við hlaupakonuna þar sem hún var nýkomin úr eggheimtu vegna óútskýrðrar ófrjósemi.
Sjá einnig: Mari sló met í eggheimtu
Mari og Njörður kynntust árið 2022 þegar Mari fór í hreyfingarferð til Tenerife og hann í golfferð. Til stóð að koma honum saman með annarri stelpu en þá hafði kviknað neisti á milli hans og Mari. Þegar heim til Íslands var komið bauð Njörður henni á stefnumót og þá var ekki aftur snúið.