Facebook færsla Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, þar sem hún gagnrýndi stuðningsmenn aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið, hefur heldur betur kveikt í kommentakerfinu á síðu hennar og leitt til harðra orðaskipta milli fylgjenda og andstæðinga ESB.
Sólveig Anna birti mynd af ungu fólki sem tók þátt í samkomu gegn ESB sem varð kveikjan að hundruðum athugasemda þar sem deilt var bæði um Evrópusambandið og afstöðu hennar til þess.
Sólveig Anna skrifaði síðar í athugasemdum:
„Ég er nú ýmsu vön en þið já-ararnir eruð bókstaflega snar. Hvaða fólk ætlið þið að sannfæra með þessu skítkasti ykkar?“
Sögð hafa gengið í lið með auðvaldinu
Margir gagnrýndu Sólveigu Önnu harðlega fyrir að vera gegn aðildarviðræðum og sögðu hana hafa yfirgefið fyrri pólitískar áherslur sínar.
Júlíus Sigurjónsson spurði meðal annars:
„Hvernig tilfinning er það að vera ljós fyrir hina vinnandi stéttir yfir í það að falla í faðm auðvaldsins og svíkja sína umbjóðendur?“
Páll Valur Björnsson rifjaði upp eldri ummæli hennar um nýfrjálshyggju og skrifaði að það væri „sorglegt að sjá þig leiðtoga þessara kvenna vera fallna í heitan faðm þessa feðraveldis.“
Því svaraði Sólveig:
„Þú getur reynt að finna það sem ég sagði um ESB löngu fyrir árið 2021, agalegt að ég skuli valda karlinum þér vonbrigðum með því að berjast ekki rétt fyrir láglaunakonur.“
Sökuð um rasisma
Einn umdeildasti hluti umræðunnar snerist um ásakanir um að andstaða við ESB fæli í sér samstöðu með öfgahægri.
Þorvaldur Sverrisson skrifaði:
„Að ganga í lið með rasistum er bara mjög alvarlegt mál og það er ekki skítkast að benda á það.“
Benedikt Sigurðarson tók í svipaðan streng og sagði:
„Úff… að setja sitt pólitíska pund á vog með rasistum og sendlum fyrir versta ólígarkí sem Ísland hefur fram til þessa séð.“
Þessu var harðlega mótmælt af öðrum þátttakendum í umræðunni sem sögðu slíkar ásakanir vera dæmi um nákvæmlega það skítkast sem Sólveig Anna hefði gagnrýnt.
Persónulegar árásir
Umræðan varð á köflum mjög persónuleg.
Einn skrifaði:
„Mun afskrá mig úr félaginu á meðan þú ert í forsvari.“
Annar sagði:
„Djö hefurðu fallið í áliti.“
Og sá þriðji:
„Höfum við fundið einn í viðbót, afeitrum hana.“
Aðrir sögðu hana meðal annars fá „falleinkunn“, sögðu hana hafa „fallið í faðm auðvaldsins“ eða spurðu hvort hún væri yfirhöfuð að tala fyrir hönd félagsmanna sinna.
Svaraði gagnrýni með kaldhæðni
Sólveig Anna svaraði einnig öðrum gagnrýnendum.
Þegar því var haldið fram að ungt fólk hefði aðeins mætt vegna ókeypis veitinga svaraði hún:
„Þarna voru engir ókeypis drykkir, það var smá kökubiti í boði.“
Og þegar því var haldið fram að hún hefði yfirgefið baráttu láglaunafólks svaraði hún eins og áður sagði að andstaða hennar við ESB væri ekki ný af nálinni og hvatti gagnrýnendur til að kynna sér eldri skrif sín.