Jafnt er á með fylkingum í nýrri skoðanakönnun um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
Samkvæmt niðurstöðunum segjast 46 prósent ætla að greiða atkvæði gegn því að viðræður verði hafnar að nýju og jafn stór hópur ætlar að segja já. Átta prósent eru óráðin.
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, vekur athygli á niðurstöðunum í færslu á X og segir þær benda til þess að andstæðingar aðildarviðræðna hafi sótt í sig veðrið.
Forskot já hliðarinnar horfið
Morgunblaðið greinir frá könnuninni á forsíðu föstudagsblaðsins. Þar segir að niðurstöðurnar marki breytingu frá öðrum nýlegum könnunum, þar sem fylgjendur aðildarviðræðna hafi verið sjónarmun fleiri.
„Þessi könnun bendir til þess að andvígir hafi sótt í sig veðrið með þeim árangri að engu munar á þeim,“ segir í umfjöllun Morgunblaðsins sem Snorri birtir með færslu sinni.
Snorri segir niðurstöðurnar vera jákvæð tíðindi að sínu mati en að þær komi honum þó ekki sérstaklega á óvart.
Telur umræðuna draga úr stuðningi
Snorri segist hafa talið að eftir því sem efnisleg umræða um málið yrði meiri, þeim mun fráhverfari yrði almenningur þeirri hugmynd sem lögð verður fyrir þjóðina.
Hann gagnrýnir ríkisstjórnina og segir hana bæði klofna og brothætta. Þá telur hann hana ekki hafa fengið umboð í síðustu alþingiskosningum til að hefja aðildarviðræður að nýju.
Snorri lýsir atkvæðagreiðslunni þannig að kjósendur séu beðnir um að veita ríkisstjórninni umboð til þess að senda utanríkisráðherra til Brussel til að semja um grundvallarmál Íslands til framtíðar.
„Vondar hugmyndir þola illa efnislega umræðu og ætli þetta sé ekki ágætt dæmi um einmitt það, vonda hugmynd,“ skrifar Snorri.
Hann lýkur færslunni með orðunum: „Sama og þegið, X við nei-ið.“
Andvígir sækja í sig veðrið samkvæmt nýrri skoðanakönnun.
Hér berast athyglisverð tíðindi inn um lúguna undir kvöld, sem greint er frá á forsíðu Morgunblaðs morgundagsins. Staðan er 46% nei, 8% óráðin, 46% já.
Eins og segir í fréttinni: „Enginn munur er á fjölda þeirra, sem… pic.twitter.com/Z7tkNYtvnT
— Snorri Másson (@5norri) August 5, 2026