Vísindamenn frá Argentínu og Kosta Ríka fundu nýlega agnarsmáan, grænleitan næturforsk á kaffiekrum í Kosta Ríka sem jafnframt er í hættu vegna skordýraeiturs sem bændur nota við ræktunina.
Froskarnir sækjast ekki eftir kaffiberjunum sjálfum heldur gæða sér á smáum skordýrum. Froskurinn er aðeins fjórir sentímetrar á lengd og er einnig þekktur sem „vorfroskurinn“ eða „kaffifroskurinn“ í San Lorenzo de Tarrazu.
Rannsakandinn Wagner Chaves-Acuna sagði AFP-fréttaveitunni að vísindamenn hefðu ekki vitað áður af tilvist frosksins sem finnst hvergi annars staðar en í Kosta Ríka. Hann varar við því að notkun skordýraeiturs geti ógnað tilvist þessara smáu froskdýra.
Eitrið berist með loftinu, síist í gegnum jarðveginn og streymi út í vatnakerfin þar sem lirfurnar þroskast.
Eitt sérkenni litlu froskanna er að háls karldýranna er hálfgagnsær og þenst út þegar þau gefa frá sér stutt og hávært kall. Froskarnir litlu eru virkastir á nóttunni og þá má heyra söng þeirra óma þar sem þeir sitja í makindum á kaffirunnunum.