Fjögurra milljarða króna niðurskurður á ári er fram undan í framhaldsskólum samkvæmt nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Skólameistari Menntaskólans á Akureyri var ómyrkur í máli við barna- og menntamálaráðherra í ræðu á brautskráningu í gær.
„Það sem virðist vera að gerast er að það er verið að þrengja að framhaldsskólastiginu varðandi fjárveitingar. Nýsamþykkt fjármálaáætlun segir allt sem segja þarf. Fyrir allt skólastigið er þetta um fjórir milljarðar á ári sem á að draga úr framlögum á fjármálaáætlun. Ég á mjög erfitt með að trúa því að þetta sé vilji stjórnvalda að draga úr mætti og menntun á heilu skólastigi með þessum hætti,“ segir Karl Frímannsson, skólameistari MA í samtali við fréttastofu.
Mikill halli á rekstri MA undanfarin ár
MA hefur verið rekinn með uppsöfnuðum 160 milljóna króna halla í fimm ár. Eftir mikla hagræðingu er hallareksturinn á bak og burt en komin krafa frá ráðuneytinu um að skólinn greiði hallann til baka. Það komi niður á náminu.
„Við erum að tala um að við þurfum að draga saman um 40 milljónir á ári sem þýðir um þrjú stöðugildi á ári. Þrátt fyrir þetta erum við búnir að fara í hagræðingaraðgerðir á síðustu árum. Þetta þýðir að í haust munum við ekki bjóða upp á sviðslistabraut sem við höfum gert undanfarin ár og ekki mála- og menningarbraut sem við höfum gert undanfarna áratugi,“ segir Karl. Hann telur þó ekki að það komi til uppsagna. Hann telur nauðsynlegt að ráðuneytið móti heildstæða stefnu og ákvörðun um að skera niður á þessu námsstigi eigi að koma frá ráðuneytinu í stað þess að nauðbeygja skólana til að taka þessar ákvarðanir sjálfir.