Grímseyingar eru mjög ósáttir við fækkun ferða ferjunnar Sæfara til og frá eyjunni. Formaður hverfisráðs Grímseyjar segir að uppbygging sé ómöguleg haldi ferðum áfram að fækka.
Í upphafi árs bjuggu 58 í Grímsey. Siglingin á milli Grímseyjar og Dalvíkur tekur þrjár klukkustundir. Nýverið var ákveðið að fækka ferðum yfir vetrartímann, úr fjórum í þrjár, með því að fella niður siglingar á fimmtudögum.
Halla Ingólfsdóttir, formaður Hverfisráðs Grímseyjar og framkvæmdastjóri Arctic Trip, sagði á Morgunvaktinni á Rás 1 að þetta væru afdrifaríkar breytingar fyrir samfélagið og ferðaþjónustuna.
„Þegar ég kem hérna fyrst fyrir tæpum 30 árum voru tvær ferðir á viku – erum við virkilega að fara aftur í fornöld? Og líka það að þetta er það eina sem við erum að biðja um að samgöngurnar virki því að svo líka kannski gerist það að það er ekki veður á miðvikudeginum og við gerum okkur grein fyrir því að við ráðum ekki við veðrið. En þá væri það ekki fyrr en á föstudegi.“
Segir sumarið hafa farið vel af stað
Hverfisráðið hefur óskað eftir auknum stuðningi við ferjuna og þjónustu Vegagerðarinnar. Halla segir skertan stuðning gera Grímseyingum erfitt fyrir.
„Það segir sig sjálft að þegar við búum úti í opnu Atlantshafi, ef það eiga ekki að vera neinar ferðir hingað og alltaf verið að skera meira og meira niður, hvernig eigum við að reyna það?
Hvernig eigum við að byggja eitthvað upp? Síðan er það fyrirsjáanleikinn. Við erum að reyna að gera framtíðarplön. Hvernig getum við búið til ferðir og aukið vöruúrval þegar við vitum ekki hvenær við fáum að hafa ferðir?“
Sumarið hefur farið vel af stað í Grímsey, segir Halla. Von sé á fjörutíu skipum og fjölda ferðamanna. Hún segir samfélaginu hafa tekist að rétta sig af eftir covid og þeim mun mikilvægara að tryggja skilvirkar og reglulegar samgöngur.
„Lífið er gott í Grímsey. Ef samgöngurnar virka verðum við sátt.“