Seinnipartinn í gær barst útkall vegna elds í skemmu í Norðfjarðarsveit. Slökkviliðið var komið á vettvang níu mínútum eftir að útkall barst frá Neyðarlínu og var skemman fljótt alelda.
Frá þessu greinir slökkviliðið í Fjarðabyggð í færslu á Facebook.
Þar segir að þrír slökkvibílar frá tveimur stöðvum, auk bakvaktarbíls, hafi sinnt útkallinu. Gekk vel að ráða niðurlögum eldsins og tryggja að hann bærist ekki í nærliggjandi byggingar. Aðgerðin tók rúma þrjá og hálfan tíma.
Þá segir að eldsupptök séu ókunn.