Kjörbúðin í Bolungarvík lokar um miðjan mánuðinn og þá verður aðeins ein verslun eftir í bænum. Í viðtali við Bæjarins besta er haft eftir Vífli Ingvarssyni framkvæmdastjóra Kjörbúðarinnar að búðin hafi verið rekin með tapi í lengri tíma. Hluta starfsmanna hafi verið boðið annað starf hjá Nettó á Ísafirði.
Á meðal bæjarbúa sem hafa tjáð sig um lokunina á Facebook er Nikólína Þorvaldsdóttir. Hún segir mikinn missi að Kjörbúðinni.
„Það er náttúrlega alveg skelfilegt að þurfa að fara yfir í næsta bæjarfélag fyrir mjólk.“
Telur stærri verslun geta haldið sjó í bænum
Nikólína nefnir að í Bolungarvík sé góð verslun sem heitir Bjarnabúð. Þegar fólk geri stórinnkaup fari það þó yfirleitt inn á Ísafjörð og í stórmarkaðina þar.
Hún bendir á að íbúarnir séu um þúsund talsins og mikið um að vera í atvinnulífi bæjarins í kringum strandveiðar. Stærri verslun ætti því að geta haldið sjó í bænum.
„Við erum alltaf stórhuga, Víkarar,“ segir Nikólína. Íbúar vilji fá stóra verslun í bæinn. „Það eru kannski bara of háleitar hugmyndir hjá okkur.“
Eyrarhlíðin reglulega ófær og þá mæta Hnífsdælingar til að versla
Hún bætir því við að það sé hreinlega nauðsynlegt að geta fengið allar helstu nauðsynjar án þess að þurfa að fara inn á Ísafjörð.
„Við verðum eiginlega að hafa verslun, það er bara þannig. Því stundum gerast veðrin það slæm að það er ekki hægt að fara inn á Ísafjörð til þess að versla. Því að Eyrarhlíðin á milli Hnífsdals og Ísafjarðar er mjög oft ófær og þá koma Hnífsdælingar út eftir til að versla hjá okkur af því að það eru göng þarna á milli.“