Sjálf­stæðis­menn verði að hætta að vera litlir í sér - Vísir
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Sjálf­stæðis­menn verði að hætta að vera litlir í sér - Vísir

Sjálf­stæðis­menn verði að hætta að vera litlir í sér - Vísir

Þetta er meðal þess sem fram kom í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær þar sem rætt var við Björn Inga. Líkt og fram hefur komið metur Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík nú stöðuna og mun ræða við oddvita Miðflokks, Viðreisnar og Framsóknar í dag. Tveir kostir hafa verið nefndir í stöðunni, tveggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks eða meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar.

Telur suma innan flokksins hrædda við „vókið“

„Ég held bara að það blasi við að það var borgaraleg bylgja og ég held að kjósendur á lokasprettinum hafi aukið fylgi Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins sem fengu báðir meira í kosningunum heldur en í síðustu könnunum vegna þess að þeir vildu sjá breytingu og báðir þessir flokkar voru að kalla eftir breytingum, segja að það þyrfti að snúa við blaðinu í Borgarlínunni og hitt og þetta,“ segir Björn Ingi.

Hann segist ekki sjá hvernig þetta sé flókið reikningsdæmi. Hefðu vinstriflokkarnir fengið meirihluta í kosningunum væru þeir þegar búnir að mynda meirihluta og hefðu ekkert beðið með það.

Hvað er svona flókið núna?

„Ég skal ekki segja. Kannski er þetta bara fullkomlega eðlilegt að allir eru rétt að draga andann eftir ótrúlega mikið kapp núna síðustu vikur. Ég held samt að þetta sýni að innan Sjálfstæðisflokksins eru sumir ennþá hræddir við vókið, hræddir við að vera umdeildir, hræddir við að taka hægri beygju. En margir í flokknum, þar á meðal held ég kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru ekkert hræddir við það, þeir vilja bara að það sé gert.“

Björn Ingi segir flokkana eiga mikla málefnalega samleið. Enginn í Miðflokknum hræðist tilhugsunina um að Sjálfstæðisflokkur myndi meirihluta með Viðreisn og Framsóknarflokki. Í því gætu falist hörkutækifæri að sögn Björns Inga fyrir Miðflokkinn sem væri þá í stjórnarandstöðu frá hægri og Samfylkingin í stjórnarandstöðu frá vinstri.

Þykir orðalag um breiða skírskotun sérstakt

Þá segir Björn Ingi að Miðflokkurinn standi með mannréttindum minnihlutahópa, spurður út í orð Hildar um að henni hugnist ekki að gera flokkum hátt undir höfði sem tali niður mannréttindi og réttindi minnihlutahópa.

„Það er enginn að tala niður mannréttindi eða slíkt og við stöndum ekkert fyrir það. Það er bara áróður þeirra sem vilja aldrei ræða nokkurn skapaðan hlut. Ef þú heldur því fram að þér finnist nú kannski fara betur á því að það sé íslenski fáninn fyrir framan skólann heldur en einhver annar þá ertu ekki að hata einhvern hóp, þú ert bara að segja þína skoðun. Og við verðum að geta talað eins og fólk hvert við annað án þess að við séum alltaf farin að saka hvert annað um að vera hatursfull þó við séum bara að ræða fullkomlega eðlilega hluti sem eru ræddir á flestum heimilum alla daga.“

Hvernig lestu í orð Hildar þar sem hún talar um að það þurfi að mynda stjórn í borginni með breiða skírskotun, mörgum fannst hún vera að tala sig inn í samstarf við Viðreisn og Framsókn?

„Mér finnst þetta pínu sérstakt, sérstaklega í ljósi þess að hún talaði um í kosningabaráttunni: „Strax.“ Og var að tala fyrir hægri áherslum og hægri áherslurnar unnu í þessum kosningum. Og ef hægri áherslurnar unnu og fólkið vildi það, kemurðu þá eftir kosningar og ferð að tala um breiðari skírskotun? Það getur vel verið. Ég meina hún hefur að sjálfsögðu fullt leyfi til þess að taka þann pól í hæðina, en ég er ekkert viss um að kjósendur hafi sérstaklega verið að kalla eftir því. Einar Þorsteinsson tapaði 75 prósent af sínu fylgi, er ákall frá kjósendum um að hann verði í meirihluta, er eitthvað sérstakt ákall um það? Ég bara leyfi mér að efast um það.“

Segir kjósendur þreytta á miðjumoði

Björn Ingi segir kjósendur vera þreytta á útvötnuðu miðjusamstarfi og rifjar upp ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og VG þar sem allir hafi rifist innbyrðis. Allir hafi verið hundleiðir á því og segist hann treysta því að hvorki Sjálfstæðismenn né aðrir hafi áhuga á slíkum meirihluta í borginni. Yfirgnæfandi hluti kjósenda Miðflokks og Sjálfstæðisflokks vilji samstarf flokkanna tveggja.

„Þannig ég satt að segja sé ekki hvert vandamálið er. Og ég held að menn verði bara að hætta að vera litlir í sér og þora að mynda meirihluta í samræmi við vilja kjósenda. Og láta sér ekki detta í hug að það sé hægt að vera þannig að öllum líki. Vinstrimenn verða óánægðir með margt sem þessi meirihluti gerir, sérstaklega ef meirihlutinn ætlar að fara að breyta því sem vinstrimennirnir hafa verið að gera í borginni í sextán ár. Ef menn ætla að taka mark á úrslitum kosninganna þá breyta þeir. Annars er bara alveg eins gott að Sjálfstæðisflokkurinn myndi meirihluta með Samfylkingunni og haldi áfram bara. Það er ekkert flóknara en það.“

En Björn Ingi, viltu spá fyrir um framhaldið, hvað gerist núna?

„Mín spá og ég hef ekkert fyrir mér í því, ég held þetta sé allt á fyrstu skrefunum, er það að þegar Sjálfstæðismennirnir vinir mínir eru búnir að ná jarðsambandi og átta sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn fékk níu og Miðflokkurinn þrjá, þá munu þeir klára þetta samstarf og mega kannski ekki gleyma því að ef Miðflokkurinn hefði ekki fengið þriðja manninn, þá væri örugglega búið að mynda vinstrimeirihluta. Það er nú bara þannig.“

#hætta #litlir #sjálfstæðismenn #vera #verði

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262886572d/sjalfstaedismenn-verdi-ad-haetta-ad-vera-litlir-i-ser

📰 Aðrar fréttir

Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 1
Fylgst með ferðum fálkaunga í raun­tíma í fyrsta sinn - Vísir
Fálki er útbreiddur en sjaldgæfur varpfugl á Íslandi. Rjúpa er hans mikilvægasta bráð og lengi vel réðst staða fálkastofnsins af rjúpnastofninum. Það ...
Aðför gegn kristni
📅 23.11.2026 👁️ 1
Aðför gegn kristni
Aðför gegn kristni Fréttin23. nóvember 2026Erlent, Innlent, TrúmálLeave a Comment Eftir Árna Má Jensson: Árni Már Jensson fjallar í greininni um ofsók...
Óhugsandi að Bretar gangi aftur í ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu
📅 23.11.2026 👁️ 0
Óhugsandi að Bretar gangi aftur í ESB án þjóðaratkvæðagreiðslu
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði. Burnh...
Náttúruminjasafn sameinað Náttúrufræðistofnun vegna fjárskorts
📅 23.11.2026 👁️ 0
Náttúruminjasafn sameinað Náttúrufræðistofnun vegna fjárskorts
Bág fjárhagsstaða Náttúruminjasafns Íslands virðist ein helsta forsenda vilja stjórnvalda til sameiningar þess og Náttúrufræðistofnunar. Áform um laga...
Þorgerður Katrín: Aðild að ESB ekki sjálfstætt markmið – tæki til að efla hag almennings
📅 23.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín: Aðild að ESB ekki sjálfstætt markmið – tæki til að efla hag almennings
Kappið ber fegurðina ofurliði hjá stjórnarandstöðunni og gjarnan virðist vera kapphlaup milli Miðflokks- og Sjálfstæðismanna um það hver geti verið me...
„Pabbi, hvað gerðir þú í dag? Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“
📅 23.11.2026 👁️ 1
„Pabbi, hvað gerðir þú í dag? Ég drap sautján menn, nauðgaði sex konum og rændi fimm bílum, en þú, elskan mín?“
Sverrir Björnsson, hönnuður, veltir því fyrir sér hvers vegna hundruð milljóna heimilisfeðra hafi tekið sé frí frá vinnu í síðustu viku til þess að sp...
Arnarvarp ársins í meðallagi
📅 23.11.2026 👁️ 4
Arnarvarp ársins í meðallagi
Náttúrufræðistofnun telur arnarvarp sumarsins 2026 vera í meðallagi samanborið við fyrri ár. Alls verptu 61 par en aðeins 41 kom ungum á legg, 58 tals...
Telja Evrópubúa hafa borgað of mikið fyrir gosið vegna ólöglegra viðskiptahátta
📅 23.11.2026 👁️ 2
Telja Evrópubúa hafa borgað of mikið fyrir gosið vegna ólöglegra viðskiptahátta
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf í dag rannsókn á Coca-Cola Europacific Partners (CCEP). Grunur leikur á að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráða...
Víðförull Grikki fékk 9 ára fangelsi fyrir að smygla 43 kílóum af kókaíni
📅 23.11.2026 👁️ 2
Víðförull Grikki fékk 9 ára fangelsi fyrir að smygla 43 kílóum af kókaíni
Alexandros Katsanos, grískur karlmaður á fimmtugsaldri, hefur hlotið níu ára fangelsi fyrir að smygla tæpum 43 kg af kókaíni í Renault Trafic-bifreið ...
What failure of COP31 reveals about a divided world
📅 23.11.2026 👁️ 1
What failure of COP31 reveals about a divided world
Interests of oil-producing countries, a US boycott and a dispute over finance may have torpedoed climate talks.
María og Margrét Kristín metnar hæfastar
📅 23.11.2026 👁️ 1
María og Margrét Kristín metnar hæfastar
Þær María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, teljast hæfastar...
Comedian impersonates Trump's dance moves, mocks trade talks at Canada press dinner
📅 23.11.2026 👁️ 1
Comedian impersonates Trump's dance moves, mocks trade talks at Canada press dinner
The impersonator, Canadian comedian Mark Critch, poked fun at the US president's search for a new press secretary and US-Canada trade talks.
Draumurinn rættist og Sigga klæddist kjól af mömmu sinni
📅 23.11.2026 👁️ 2
Draumurinn rættist og Sigga klæddist kjól af mömmu sinni
Fegurðardrottningin og söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ózk, var glæsileg á fyrra undanúrslitakvöldi Ungfrú alheims í gær...
Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang
📅 23.11.2026 👁️ 2
Börn fædd á Íslandi fá ekki vegabréf - Hvergi með skráð ríkisfang
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn tveggja barna sem fædd eru á hér á landi og eru systkini um ve...
Patreksfirðingur sleppur með skrekkinn - Gaf grunlausum vini sínum kannabisköku
📅 23.11.2026 👁️ 2
Patreksfirðingur sleppur með skrekkinn - Gaf grunlausum vini sínum kannabisköku
Maður sem er íbúi á Patreksfirði hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Vestfjarða ef ákæru um að hafa stofnað heilsu vinar síns í augljósan háska. Gaf mað...
Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar
📅 23.11.2026 👁️ 3
Rússar sagðir undirbúa að senda kjarnorkuvopn út í geim fyrir áramót – Afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar
Rússar eru sagðir undirbúa að senda gervihnött búinn kjarnorkuvopni á braut um jörðu áður en árið er á enda. Vestrænar leyniþjónustustofnanir telja að...
Pedro Sánchez announces €1.4 billion housing pledge during visit to Tenerife
📅 23.11.2026 👁️ 2
Pedro Sánchez announces €1.4 billion housing pledge during visit to Tenerife
Spain's Prime Minister, Pedro Sánchez, has announced plans to raise €1.4 billion from a tax on banks to tackle the housing crisis, during a weekend el...
Háskóli Íslands og Keflavíkurflugvöllur á meðal þeirra sem bárust sprengjuhótanir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Háskóli Íslands og Keflavíkurflugvöllur á meðal þeirra sem bárust sprengjuhótanir
Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Lögregla greindi frá því í dag eftir fyrirspurn fréttastofu að ým...
Canary Islands Social Calendar: Local nights out and relaxed evenings in
📅 23.11.2026 👁️ 2
Canary Islands Social Calendar: Local nights out and relaxed evenings in
The Canary Islands have a lovely habit of making an ordinary evening feel like an occasion. One night you might be listening to a local band in a town...
Kokka­lands­liðið stefnir á verð­launa­pall eftir gull á fyrsta degi - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Kokka­lands­liðið stefnir á verð­launa­pall eftir gull á fyrsta degi - Vísir
Nú beinist athyglin að seinni keppnisdeginum, sem er á morgun, þriðjudaginn 24. nóvember. Þá keppir liðið í Chefs Table, þar sem íslenskur þorskur og ...
María og Margrét Kristín hæfastar um­sækj­enda - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
María og Margrét Kristín hæfastar um­sækj­enda - Vísir
Þetta segir í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Það kemur svo í hlut Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra að skipa nýj...
Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur
📅 23.11.2026 👁️ 3
Hlébarði of gamall til að fara í megrun – Fær að vera feitur og hamingjusamur
Hlébarðinn Pan Babobao í dýragarðinum í Panzhihua í Kína hefur vakið mikla eftirtekt að undanförnu fyrir holdarfar sitt. Dýragarðsverðirnir segja hann...
Íris varar við lúmskri gildru á Black Friday – Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga
📅 23.11.2026 👁️ 2
Íris varar við lúmskri gildru á Black Friday – Fimm atriði sem allir ættu að hafa í huga
Svikarar undirbúa sig nú fyrir Black Friday rétt eins og verslanir og neytendur. Með ótrúlegum tilboðum, fölskum netverslunum og skilaboðum um vörusen...
Stefán Einar hjólar í Þorgerði Katrínu sem talar um dylgjur – „Að hverju er verið að ýja hér?“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Stefán Einar hjólar í Þorgerði Katrínu sem talar um dylgjur – „Að hverju er verið að ýja hér?“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra brást illa við þegar Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hana út í ráðningu Heið...
Ó­þekkt efni batt enda á tón­leika - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 3
Ó­þekkt efni batt enda á tón­leika - Vísir
Tónleikagestir hafa margir hverjir lýst því í samtali við breska fjölmiðla að þeir hafi talið reykinn hluta af tónleikunum. Gamanið kárnaði hins vegar...
Ekkert vitað hvernig íslenskur maður veiktist af creutzfeldt-jakob
📅 23.11.2026 👁️ 3
Ekkert vitað hvernig íslenskur maður veiktist af creutzfeldt-jakob
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu ekki unnt að segja til um ástæður þess að íslenskur karlmaður smita...
Man faces €15,000 in fines over graffiti in Tenerife
📅 23.11.2026 👁️ 4
Man faces €15,000 in fines over graffiti in Tenerife
A 26-year-old man faces fines totalling up to €15,000 over 10 alleged incidents of graffiti on public and private property in Santa Cruz de Tenerife. ...
Tjörnesingar og milljónirnar: Sólarsellur handa öllum?
📅 23.11.2026 👁️ 4
Tjörnesingar og milljónirnar: Sólarsellur handa öllum?
Tjörneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins með 54 íbúa. Innan við 100 íbúar eru í tveimur öðrum sveitarfélögum. Í Árneshreppi búa 60 og í Skor...
Sprengjuhótanir bárust stofnunum og fyrirtækjum í morgun – lögreglan telur ekki ástæðu til frekari aðgerða
📅 23.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir bárust stofnunum og fyrirtækjum í morgun – lögreglan telur ekki ástæðu til frekari aðgerða
Ríkislögreglustjóri tilkynnti í dag að ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hafi borist sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. „Lögreglan tekur allar slíkar...
Blaina girl Lilly Jones stabbed by 14-year-old boy, murder trial told
📅 23.11.2026 👁️ 0
Blaina girl Lilly Jones stabbed by 14-year-old boy, murder trial told
Lilly Jones's body was found near Duffryn Park in Blaina two days after she was reported missing.
Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma - Vísir
Nöfnin tvö sem nefndin hafnaði að þessu sinni voru Hinrick og Yrma. Eiginnafnið Hinrick er ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem bó...
Björguðu eftirlegukindum úr sjálfheldu í Hamarsá
📅 23.11.2026 👁️ 4
Björguðu eftirlegukindum úr sjálfheldu í Hamarsá
Þrjár kindur hefðu hlotið sorglegan dauðdaga ef ekki hefði verið fyrir sjö manna flokk frá björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi. Ærnar hröktust út í Ha...
Skoða hvort sprengju­hótanir í morgun tengist fyrri hótunum - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Skoða hvort sprengju­hótanir í morgun tengist fyrri hótunum - Vísir
Í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra segir að í morgun hafi ýmsum stofnunum og fyrirtækjum borist sprengjuhótanir í tölvupósti. Lögreglan taki allar ...
Jennifer Lawrence segir þennan MAGA stuðningsmann versta kyssarann – Óþægilegt kynlílfsatriði
📅 23.11.2026 👁️ 3
Jennifer Lawrence segir þennan MAGA stuðningsmann versta kyssarann – Óþægilegt kynlílfsatriði
Jennifer Lawrence segir leikarann Chris Pratt þann versta sem hún hafi þurft að kyssa. Lawrence lýsir óþægilegu kynlífsatriði með Pratt, sem þykir hal...
Missti titilinn eftir að hópspjallið lak - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Missti titilinn eftir að hópspjallið lak - Vísir
Quyhn Ahn var krýnd í Víetnam í byrjun október en hélt titlinum þó í mjög stuttan tíma þar sem einhver lak einkaskilaboðum frá henni. Þar talaði hún i...
Mark­miðið ó­breytt þrátt fyrir ó­einingu á COP31 - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Mark­miðið ó­breytt þrátt fyrir ó­einingu á COP31 - Vísir
Þrýstingurinn á að ríki heims gyrði sig í brók og grípi til frekari aðgerða til þess að koma böndum á hnattræna hlýnun hefur aldrei verið meiri, þó að...
Musk dreifði færslu um Ísland – hún segir jafnrétti virðast þýða „yfirráð kvenna“
📅 23.11.2026 👁️ 2
Musk dreifði færslu um Ísland – hún segir jafnrétti virðast þýða „yfirráð kvenna“
Klukkan 01:33 aðfaranótt mánudags endurbirti Elon Musk  færslu bandaríska pistlahöfundarins Lisu Britton um að jafnrétti kynjanna á Íslandi virðist í ...
ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi
📅 23.11.2026 👁️ 4
ÁTVR byrjar að bjóða upp á heimsendingu á áfengi
Frá og með deginum í dag, 23. nóvember, mun ÁTVR bjóða upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun. Boðið hefur verið upp á pantanir úr verslunum Vínbúða...
Matvælastofnun varar við vinsælu jólasmákökudeigi
📅 23.11.2026 👁️ 3
Matvælastofnun varar við vinsælu jólasmákökudeigi
Matvælastofnun varar við neyslu á öllum framleiðslulotum af jólasmákökudeigi, Þristakökum með vörumerkinu Evu Laufey sem Myllan framleiðir vegna málml...
Nauðgaði andlega fatlaðri konu
📅 23.11.2026 👁️ 4
Nauðgaði andlega fatlaðri konu
Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun, kynferðislega áreitni og brot gegn blygðunarsemi. Manninum er gefið að sök að hafa í fjölda skipta á ...
Stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í morgun
📅 23.11.2026 👁️ 2
Stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í morgun
Ýmsum stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar fyrirspurnar frétta...
Þremur hótelum og einni stofnun bárust sprengjuhótanir í morgun

Gugga komin á fast - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Gugga komin á fast - Vísir
Helber er fæddur árið 2006 og er samningsbundinn hjá Fylki en var lánaður til Víkings Ólafsvíkur í sumar.  View this post on Instagram A post shared b...
Ásakanir um dylgjur og aðdróttanir
📅 23.11.2026 👁️ 4
Ásakanir um dylgjur og aðdróttanir
„Í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðhe...
Hægt að panta áfengi heim frá ÁTVR
📅 23.11.2026 👁️ 3
Hægt að panta áfengi heim frá ÁTVR
ÁTVR býður upp á heimsendingu á vörum úr vefverslun frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR. Þar segir að boðið hafi verið u...
Sjúkraskrárkerfi Landspítalans lá niðri
📅 23.11.2026 👁️ 3
Sjúkraskrárkerfi Landspítalans lá niðri
Heilsugátt Landspítalans lá niðri í rúmlega korter laust eftir hádegið. Heilsugátt er rafrænt sjúkraskrárkerfi í eigu spítalans.Fréttastofu hafa boris...
Björn Bragi selur lúxusíbúð í Skugga­hverfinu - Vísir
📅 23.11.2026 👁️ 2
Björn Bragi selur lúxusíbúð í Skugga­hverfinu - Vísir
Íbúðin er í fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2006. Hún var endurhönnuð árið 2019 og sá Hafsteinn Júlíusson hjá HAF Studio um hönnun. Björn Braga þarf ...
Don Toliver postpones London O2 arena show after Manchester evacuation
📅 23.11.2026 👁️ 2
Don Toliver postpones London O2 arena show after Manchester evacuation
Don Toliver's show on Sunday was evacuated after an "unknown substance" was released into the crowd.
Ukraine war: How drone attacks on Russian ships in Libya unfolded
📅 23.11.2026 👁️ 4
Ukraine war: How drone attacks on Russian ships in Libya unfolded
Two Russian ships were hit by Ukrainian drones in Libya on Sunday, with verified videos showing huge fireballs, smoke plumes and sea drones attacking ...
Fær að setjast aftur í forstjórastólinn
📅 23.11.2026 👁️ 3
Fær að setjast aftur í forstjórastólinn
Stjórn Nvidia tilkynnti í dag að hún ætlaði að skipa Jensen Huang aftur í starf forstjóra félagsins.Endurráðning Huangs hlaut einróma samþykki stjórna...