Sjálfstæðisflokkurinn og S-listi Samfylkingar og óflokksbundinna hafa náð samkomulagi um að mynda meirihluta í Hveragerði.
Meirihluti Framsóknarflokksins og Okkar Hveragerðis féll í kosningunum fyrr í mánuðinum og er því ljóst að algjörlega nýr meirihluti tekur til starfa í bænum.
Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðis. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins, verða forseti bæjarstjórnar.
Þjónusta við íbúa og bæjarbragur
„Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best. Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina,“ er haft eftir Ingimari í tilkynningu.
Í tilkynningunni segir að framboðin hafi gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði en í honum segir meðal annars að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf.
Fjallað var um meirihlutaviðræðurnar í Morgunblaðinu fyrr í vikunni en þar sagði Birgitta, hinn nýi formaður bæjarráðs, að nýr meirihluti myndi draga úr áformum fyrri meirihluta um þéttingu byggðar.
„Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar,“ er haft eftir Birgittu í tilkynningunni.