Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærsti flokkurinn í Reykjavík, með 28 prósenta fylgi, samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem birt var á Sýn í kvöld. Flokkurinn eykur forskot sitt á Samfylkinguna milli kannana en hún mælist með tæp 20 prósent.
Samkvæmt könnuninni fengju Sjálfstæðismenn sjö fulltrúa í borgarstjórn en Samfylking fimm.
Þriðji stærsti flokkurinn er samkvæmt könnuninni Vinstrið, með 11,8 prósenta fylgi. Ekki mælist þó marktækur munur á því og Viðreisn, sem er með 11,6 prósent. Báðir flokkarnir fengju þrjá fulltrúa kjörna.
Miðflokkur er með 9,3 prósenta fylgi og fengi tvo borgarfulltrúa.
Þrír flokkar úti
Framsókn bætir við sig fylgi á milli kannana og er nú með tæplega 6 prósenta fylgi. Flokkurinn mælist með mann inni í dag en gerði það ekki í síðasta mánuði.
Píratar og Flokkur fólksins eru nánast hnífjafnir með 4,2 prósenta fylgi annars vegar og 4,1 prósent hins vegar.
Sósíalistaflokkurinn, Okkar borg og Góðan daginn mælast ekki með mann inni samkvæmt könnuninni. Þetta er breyting fyrir Sósíalistaflokkinn sem hefur verið að mælast með mann inni. Flokkurinn dalar um tvö prósent á milli kannana og er með 3,2 prósenta fylgi.