„Á leiðinni heim var grýtt stein í mig. Hann fór rúman hálfan metra frá höfðinu mínu,“ segir Sindri Freyja Bjarnarbur í myndbandi sem hán deilir á Facebook, myndbandið hefur vakið mikla athygli.Í dag fór fram Gleðiganga Hinsegin daga og hafa margir lýst yfir opinberum stuðningi við hinsegin fólk í tilefni dagsins. Sindri Freyja segir að hán og eiginmaður sinn hafi farið snemma heim úr gleðinni og hafi verið að ganga heim þegar atvikið átti sér stað.
Sindri Freyja grýtt eftir Gleðigönguna: „Tóku þá ákvörðun að það má bara drepa transfólk á götunni“