Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur lagt fram drög að nýrri reglugerð sem myndi banna nemendum í grunnskólum að nota eigin síma og snjalltæki allan skólatímann.
Bannið myndi ekki aðeins gilda í kennslustundum heldur einnig í frímínútum, matarhléum, vettvangsferðum, frístundaheimilum og tómstunda- og félagsstarfi sem er liður í daglegu skólastarfi.
Alls hafa tólf umsagnir borist í Samráðsgátt stjórnvalda vegna draganna. Umsagnarfrestur rennur út 8. ágúst.
Tækin eiga að vera óaðgengileg
Samkvæmt reglugerðardrögunum eiga símar, snjallúr, þráðlaus heyrnartól og önnur sambærileg tæki í eigu nemenda ekki að vera aðgengileg þeim á skólatíma.
Hver skóli á sjálfur að ákveða hvar og hvernig tækin verði geymd, til dæmis í skápum, hólfum eða geymslukössum.
Tækin yrðu áfram á ábyrgð eigenda þeirra og skólar bæru almennt ekki skaðabótaábyrgð ef þau skemmdust, hyrfu eða þeim yrði stolið. Undantekning væri ef tjón mætti sannanlega rekja til stórfellds gáleysis eða ásetnings starfsfólks.
Skólastjóri gæti veitt undanþágu frá notkunarbanninu vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa eða námsþarfa nemanda. Einnig væri hægt að veita undanþágu í öðrum sérstökum og tímabundnum tilvikum.
„Síminn er ekki afþreyingartæki“
Diabetes Ísland fagnar markmiðum reglugerðardraganna en varar við því að framkvæmd þeirra geti skapað hættu fyrir börn með sykursýki af tegund 1.
Helgi Fr. Kemp Georgsson, formaður Diabetes Ísland, bendir á að sum börn noti snjallsíma sem hluta af læknisfræðilegri meðferð sinni. Símarnir geti meðal annars tengst samfelldum blóðsykursmælum og insúlíndælum og tekið við viðvörunum um lágan eða háan blóðsykur.
„Fyrir þessi börn er síminn ekki afþreyingartæki, heldur órjúfanlegur hluti af meðferð og öryggi þeirra,“ segir í umsögninni.
Samtökin vilja að skýrt verði tekið fram að geymsluskyldan eigi ekki við um tæki sem notuð eru vegna læknisfræðilegra þarfa. Slíkur búnaður þurfi að vera aðgengilegur barninu á hverjum tíma.
Óttast óljósar reglur og aukna skriffinnsku
Ásdís Bergþórsdóttir, sálfræðingur, gerir fjölmargar athugasemdir við lagalega og praktíska framkvæmd reglugerðardraganna.
Hún telur meðal annars óljóst hvernig undanþágur eigi að virka á frístundaheimilum og hvað gerist þegar barn þarf að yfirgefa skólann vegna veikinda eða læknisheimsóknar.
Ásdís bendir einnig á að ekki sé fjallað um umsóknarferli, afgreiðslufresti, endurskoðun ákvarðana eða kæruleiðir vegna undanþágubeiðna.
„Alvarlegast er að það er enginn tímarammi á afgreiðslu undanþága,“ skrifar hún og nefnir sem dæmi barn með sykursýki sem þurfi að nota síma til að fylgjast með blóðsykri.
Hún telur einnig hættu á því að daglegar ákvarðanir, svo sem að afhenda barni síma þegar það fer veikt heim, geti orðið að formlegum undanþágum sem skólastjórar þurfi að afgreiða og skrá.
Hver á að greiða kostnaðinn?
Fleiri umsagnaraðilar vekja athygli á kostnaði og auknu vinnuálagi innan skólanna.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir spyr hver eigi að greiða fyrir hirslur og skápa undir tækin og hver eigi að sjá um að símarnir fari í örugga geymslu.
Sigurbjörg Róbertsdóttir tekur í sama streng og segir að innkaup, uppsetning og viðhald geymslulausna geti orðið veruleg fjárhagsleg byrði fyrir sveitarfélög.
Hún telur einnig að starfsfólk þurfi að verja tíma í að taka við tækjum, hafa eftirlit með vörslu þeirra og afhenda þau aftur. Það geti tekið tíma frá kennslu og faglegu starfi og aukið spennu í samskiptum nemenda og kennara.
„Þessi reglugerð er ekki til þess fallin að minnka álag á kennara og leysa einhvern vanda innan skólanna,“ skrifar Sigurbjörg.
Markmiðið að skapa símafrið
Markmið ráðuneytisins er að samræma reglur um síma- og snjalltækjanotkun í grunnskólum, skapa aukinn námsfrið og stuðla að betri einbeitingu, vellíðan og félagslegum tengslum nemenda.
Umsagnirnar sýna þó að ýmsum spurningum um framkvæmdina er enn ósvarað. Þar á meðal eru spurningar um kostnað, vörslu verðmætra tækja, undanþágur vegna heilsufars og ábyrgð skóla og frístundaheimila.
Ráðuneytið hefur tekið fram að allar ábendingar verði teknar til skoðunar áður en endanleg reglugerð verður unnin.
Hér er hægt að nálgast drögin í Samráðsgáttinni.