Símafrí verður innleitt í grunnskólum Reykjavíkur í haust og áhrif þess á fagumhverfi, námsárangur og líðan barna mæld í samstarfi við háskólasamfélagið. Þetta var samþykkt á fundi borgarstjórnar í dag.
Í tilkynningu frá borginni kemur fram að borgarstjórn hafi samþykkt að fela skóla- og frístundasviði að innleiða símafrí í grunnskólum Reykjavíkur haustið 2026.
Með símafríi er átt við að nemendur noti ekki farsíma eða sambærileg snjalltæki á skólatíma, þar með talið í frímínútum og hádegishléum, nema með sérstöku leyfi starfsfólks eða vegna skilgreindra undantekninga. Skólarnir þurfa að hafa viðeigandi aðstöðu og skýrt verklag til að geyma síma á öruggan hátt frá upphafi til loka skóladags, en hver skóli mótar sér reglur um útfærslu þess.
Í tilkynningunni kemur fram að lagt sé til að áhrif símafrís verði metin með skipulegum hætti í samstarfi við háskólasamfélagið á tveggja ára tímabili. Við matið verði meðal annars horft til námsárangurs, líðanar nemenda og starfsumhverfis kennara og annars starfsfólks.
„Notkun snjallsíma er stór þáttur í daglegu lífi barna og ungmenna en mikilvægar spurningar hafa vaknað um áhrif símanotkunar á skólastarf, einbeitingu, samskipti nemenda og líðan þeirra,“ segir í tilkynningunni.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir símafríið mikilvægan áfanga.
„Skólinn á að vera griðastaður þar sem börnin geta einbeitt sér að námi, þjálfað félagsfærni sína og tekið virkan þátt í skólasamfélaginu án stöðugs utanaðkomandi áreitis frá snjalltækjum,” segir Hildur. „Símafrí í grunnskólum snýst fyrst og fremst um að skapa börnum betra rými til að læra, leika og eiga samskipti sín á milli. Við viljum byggja ákvarðanir á þekkingu og því verður fylgst vel með áhrifum þessarar breytingar á líðan nemenda, námsárangur og starfsumhverfi skólanna. Markmiðið er ekki að hafna tækninni heldur að skapa heilbrigt umhverfi sem styður við velferð barna og farsælt skólastarf.“
Ekki horfið frá tækninotkun í skólastarfi
Menntamálaráðuneytið birti drög að reglugerð um símafrí í grunnskólum í samráðsgátt stjórnvalda 10. júní síðastliðinn og lagt er upp með að innleiðing borgarinnar verði í samræmi við áform ráðuneytisins.
Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, fjallar um notkun tækni í skólastarfi í alþjóðlegri menntamálaskýrslu frá 2023. Þar er lögð áhersla á að tækni eigi aðeins að nota í kennslu þegar hún styðji með skýrum hætti við námsmarkmið og námsárangur. Tækni geti verið gagnlegt verkfæri, en óhófleg notkun eða á ófullnægjandi hátt geti haft neikvæð áhrif. Þá hefur UNESCO bent á að nettengd tæki geti magnað upp neteinelti í skólaumhverfinu og samfélagsmiðlanotkun haft áhrif á líðan og sjálfsmynd barna og ungmenna.