Ítalski ökuþórinn, Kimi Antonelli, 19 ára sigurvegari Mónakó-kappakstursins, gerði grín að Kim Kardashian og sagði hana hafa stolið handklæðinu sínu.
„Gaur, hefurðu séð handklæðið mitt?“ sagði Antonelli í myndbandi sem birt var á Instagram á miðvikudaginn. Myndavélin færir sig síðan yfir á liðsfélaga hans George Russell, sem var spurður:
„George, hefurðu séð handklæðið hans Kimi?“ Russell svarar neitandi.
Í síðasta hluta myndbandsins sést Antonelli þvo sér um hendurnar á meðan hann spurði aftur: „Hæ, hefurðu séð handklæðið mitt?“
Aðdáendur létu í ljós í athugasemdum á Instagram hversu fyndið þetta var.
„Hækkaðu laun samfélagsmiðlamannsins,“ skrifaði einn notandi. „Þetta er meistaraverk ,“ sagði annar.
Kim Kardashian, sem var stödd á Mónakókappakstrinum til að hvetja kærastann sinn, Lewis Hamilton áfram, náðist á myndband þar sem hún gekk fram hjá fyrsta sætisverðlaunapallinum og greip hvíta handklæðið sem var lagt þarfyrir sigurvegarann, sem reyndist svo vera Antonelli. Kardashian tók svo niður sólgleraugun sín og þurrkaði svitann af andliti sér. Hamilton endaði í öðru sæti.