Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu - DV

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu - DV

Sigmundur Ernir skrifar: Vinsælasta samvinnuhreyfing Evrópu - DV

Minnihlutinn á Alþingi, sem löngu er orðinn landskunnur fyrir moðreyk sinn og muldur, óttast ekkert meira en framtíðina. Hann óskar þess heitast í ræðu og riti að fortíðin hafi betur gegn samtímanum og Ísland fari að gildum gamla tímans, hvort heldur það varðar kvenfrelsi eða kynvitund. Og allt saman liggur það fyrir eins og stafur á bók, svo sem það allra nýjasta úr munni Miðflokksmanna að karlar verði getulausir og þunglyndir við að ala upp börn, en hormónabúskapur þeirra breytist svo mjög við að koma krógunum til þroska að þeir breytist eiginlega í konur!

En afturhaldið, eðli orðsins samkvæmt, vill auðvitað aðeins fara aftur á bak. Gamalt sé gott.

Það er því ekki úr takti að íhaldsarmur Alþingis óttist samningaviðræður um mögulega aðild Íslands að Evrópu. Lyktir þeirra viðræðna gætu nefnilega orðið það góðar að landsmönnum líki við þær. Og þjóðin átti sig á því á endanum að innganga verði til hagsbóta fyrir fólk og fyrirtæki.

Og því skal enn þyrla upp moldviðri. Fyrst með því að fullyrða að viðræðurnar séu óþarfar, enda sé ekkert um að semja. En svo þegar fyrir liggur að undanþágur muni fást, þar á meðal veigamiklar sérlausnir, þá sé því til að svara að þær verði ekki varanlegar. Enda þótt það sé líka búið að hrekja.

Guð forði einni og sömu þjóðinni að svona fólk setjist að samningaborði fyrir umbjóðendur sína. Því það þráir það eitt að tapa viðræðunum fyrir fram. Sjálfstraustið er á að giska ekkert.

Og gamla tuggan endurtekur sig raunar frá einni öld til annarrar. Við höfum ekkert út fyrir landsteinana að sækja! Við eigum nóg með okkur sjálf! Útlendingar myndu yfirtaka okkur!

Yfirlýsingar fyrri framámanna þessara aðframkomnu afla hafa verið rifjaðar upp á síðustu dögum í tilefni af spurningunni um að hefja viðræður við ESB á nýjan leik. Og þau ummæli eldast ekki vel, svo ekki sé sterkara að orði komist. Úrtölur afturhaldsins eru þær sömu, frá einum tíma til annars.

„Það er sammerkt þeim fullvalda þjóðríkjum sem samþykkt hafa aðildina að ESB, stundum með litlum mun, að ánægja með inngönguna hefur vaxið hratt eftir því sem lengra hefur liðið frá undirritun.“

Samningnum um evrópska efnahagssvæðið frá 1992, sem jafnt framsóknarmenn og sjálfstæðismenn lofa núna í hástert sem mikilvægasta milliríkjasamningi í sögu Íslands, var nefnilega fundið allt til foráttu af fulltrúum þessara flokka á síðustu öld. Framsóknarmaðurinn Páll Pétursson sagði í þingræðu í ársbyrjun 1993 að EES-samningurinn væri allt í senn vondur, óhagstæður og hættulegur Íslendingum. Hann kæmi til með „að færa okkur ósjálfstæði, atvinnuleysi, fátækt og auðnuleysi.“ Stefán Guðmundsson samflokksmaður Péturs sagði að orkuauðlindir Íslands myndu ekki aðeins tapast, heldur værum við „að opna landhelgi Íslands fyrir flota Evrópubandalagsins.“ Og Eggert Haukdal úr Sjálfstæðisflokki var á sama báti, en við blasi að ESB fái aðgang að landhelginni: „Til hvers var þá barist fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu ef EB á að móta fiskveiðistefnu Íslendinga hér eftir,“ spurði hann.

Til að gæta allrar sanngirni hagaði vinstra íhaldið orðum sínum á sama veg á téðum tíma, en EES-máldaginn væri „þjóðhættulegur vegna fullveldisáhyggna,“ eins og Alþýðubandalagsmaðurinn Hjörleifur Guttormsson orðaði það. Félagi hans Steingrímur J. Sigfússon var í sama sauðahúsi, en hann gæti aldrei skilið þau rök „að vænlegasta aðferðin til að varðveita sjálfstæði sitt sé að fórna því.“ Og Ragnar vinur hans Arnalds sagði kýrskýrt að Evrópska efnahagssvæðið væri „tilraun sem mistókst.“

Nákvæmlega ekkert af þessum hrakspám hefur gengið eftir. Ekkert. Þvert á móti liggur fyrir að umræddur samningur hefur reynst slíkur happafengur fyrir land og þjóð að ekki verður við annað jafnað. Hitt blasir líka við að Evrópusambandið hefur reynst vera mikilvægasta og vinsælasta samvinnuhreyfing álfunnar. Hagur þjóða af aðild er augljós. Nú síðast tók Seðlabankastjóri Króata af skarið. Aðild þeirra að ESB hefði róað hagkerfið. „Áður en Króatía varð hluti af evrusvæðinu var Seðlabankinn aðallega í því að halda genginu stöðugu, og þegar krísuástand skapaðist, var það mikil áskorun fyrir lítið og opið efnahagskerfi, og kallaði á inngrip og stóran gjaldeyrisvaraforða,“ sagði Boris Vujčić í nýlegri Íslandsheimsókn, og ítrekaði kostnaðinn af lítilli mynt til heimabrúks.

Kunnuglegt?

Það er sammerkt þeim fullvalda þjóðríkjum sem samþykkt hafa aðildina að ESB, stundum með litlum mun, að ánægja með inngönguna hefur vaxið hratt eftir því sem lengra hefur liðið frá undirritun. Álíka er komið fyrir Bretum, með öfugum formerkjum, eina landinu sem sagt hefur skilið við ESB með minnsta mun, en nú vilja 75 prósent Breta aftur inn, en aðeins fjórðungur þeirra kýs annað.

Það er augljóslega betra að vera inni en úti. Því samningar, hver með sínum hætti, eru til hagsbóta.

Kannski orðaði forsætisráðherra Íslands þetta einna best fyrir áratug eða svo: „Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur markað sér skýra stefnu fyrir aðildarviðræður við Evrópusambandið og skilgreint samningsmarkmið þeirra viðræðna. Framsókn hefur sett það sem skilyrði fyrir aðild að fullveldi og óskorað forræði yfir auðlindum þjóðarinnar verði grundvallarkrafa í þeim viðræðum, auk skilyrða sem lúta að hagsmunum landbúnaðar og sjávarútvegs. Fordæmi eru fyrir slíku í samningum annarra þjóða við Evrópusambandið og því er algerlega rangt að halda því fram að þessar kröfur hamli því að af aðildarsamningi geti orðið.“

Varla er hægt að vera meira sammála Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.

#ernir #samvinnuhreyfing #sigmundur #skrifar #vinsælasta


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/2/sigmundur-ernir-skrifar-vinsaelasta-samvinnuhreyfing-evropu/

📰 Aðrar fréttir

Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
Erla Talía Einarsdóttir var átján ára þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2025. Núna ári síðar hefur hún birt TikTok-myndband um reynslu sína af kep...
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að upphrópanir gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni vegna brotthvarfs Guðmund...
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað...
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike til...
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
📅 25.09.2026 👁️ 2
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. S...
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gef...
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sja...
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Zohran Mamdani borgarstjóra í New York og gefi fátækum frímiða í Þjóða...
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
📅 25.09.2026 👁️ 2
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu. Ekki kemur fr...
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
📅 25.09.2026 👁️ 2
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilky...
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn. „Það er áfram m...
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið. Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin o...
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
📅 25.09.2026 👁️ 2
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
The rock band go back to their roots, playing a gig in the Dublin playground where they first met.
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 2
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 2
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 2
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 2
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 2
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 2
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...