Sex eru látnir og nokkrir særðir eftir skotárás í þýska bænum Stade í norðurhluta Þýskalands. Grunaður árásarmaður og önnur kona voru handtekin á flótta. Þá hefur þriðji maður verið handtekinn vegna málsins. Talsmaður lögreglu segir að ekki sé vitað hvað bjó að baki árásunum.
Árásin var gerð miðsvæðis í bænum á götu sem ber heitið Dankersstraße. Þýska blaðið Bild segir að árásin hafi verið gerð í nágrenni við þjónustumiðstöð fyrir ungt fólk.
Fimm manns, fjórar konur og einn karlmaður, dóu á staðnum. Sá sjötti lést af sárum sínum á spítala.
Stade er um 50 þúsund manna bær í um klukkustundar akstursfjarlægð frá Hamborg.
Fréttin hefur verið uppfærð.