Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur vísað til héraðssaksóknara kvörtun manns sem var handtekinn af sérsveit lögreglu á Ráðshústorginu á Akureyri að kvöldi þjóðhátíðardagsins 2023.
Maðurinn leitaði til nefndarinnar og taldi sig hafa verið beittan óþarfa hörku. Hann hafi verið „rifinn niður í jörðina þrátt fyrir að hafa ekki gerst brotlegur við lög“. Sérsveitarmaður hafi svo lagst af fullum þunga með hné í háls.
Málavextir eru raktir í ákvörðun nefndarinnar.
Samkvæmt gögnum frá lögreglu barst tilkynning um slagsmál fyrir utan skemmtistað við Ráðhústorgið á Akureyri. Manninum, sem kvartaði til nefndarinnar, og bróður hans hefði lent saman og voru þeir báðir handteknir. Sérsveit ríkislögreglustjóra var á vettvangi og aðstoðaði lögreglu við handtökuna.
Í bréfi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra til nefndarinnar er því hafnað að kvartandi hafi verið beittur óþarfa harðræði en vísaða á ríkislögreglustjóra, sem sérsveitin heyrir undir.
Í bréfi ríkislögreglustjóra til nefndarinnar er því sömuleiðis lýst að maðurinn hafi streist á móti við handtöku og því þurft nokkra lögreglumenn til að handtaka hann. Hann hafi verið mjög ósáttur, hótað að drepa lögreglumenn og beint svívirðingum að lögreglu.
„Búkmyndavélar- eða eyewitness upptökur [sic] er ekki að finna undir gögnum málsins,“ segir í bréfi ríkislögreglustjóra.
Þrátt fyrir að ekki séu til upptökur úr búkmyndavél sérsveitarmannanna, þá má sjá á upptöku almenns lögreglumanns að hné sérsveitarmannsins er á hálsi mannsins í nokkurn tíma.
Nefndin segir að ekki sé hægt að útiloka refsiverða háttsemi lögreglumanns. Var því niðurstaðan sú að vísa málinu til héraðssaksóknara, sem tekur ákvörðun um rannsókn.