„Það er búið að vera svolítið eftirlit með umferð. Það hefur gengið ágætlega,“ segir Jón Þór Karlsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Líkt og sjá má á myndinni hér fyrir ofan voru margir bílar skildir eftir í íbúðagötum í grennd við mótsvæðið. Sjónarvottur segir að miðar hafi verið fastir við framrúður þó nokkurra, merki um að lögreglan hafi verið á ferðinni og sektað þá sem lögðu ólöglega.
Jón Þór segir að einnig hafi sérstaklega verið fylgst með öryggisbúnaði barna og hvort að börn sem væru ekki nógu hávaxin væru í framsætinu. Ekki sé um óhefðbundið eftirlit að ræða og hafi mestallt eftirlitið gengið vel.