Landsréttur hefur fellt úr gildi frávísunarúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur og lagt fyrir héraðsdómara að taka mál Samkeppniseftirlitsins á hendur Samskipum til efnislegrar meðferðar. Samkeppniseftirlitið vekur athygli á úrskurðinum í fréttatilkynningu.
Málið höfðaði Samkeppniseftirlitið í þeim tilgangi að fá stjórnvaldssekt Samskipa, sem áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafði lækkað úr 4,2 milljörðum í 2,4 milljarða króna, færða í fyrra horf.
Samkeppniseftirlitið taldi þá sekt sem áfrýjunarnefndin hafði kveðið á um ekki vera í samræmi við alvarleg og langvarandi brot Samskipa.
Ríkir almannahagsmunir
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá dómi vegna annmarka og sagði stefnu Samkeppniseftirlitsins hafa falið í sér óhóflegan skriflegan málflutning.
Lengd stefnunnar hafi gert Samskipum nær ómögulegt að skila greinargerð sem uppfyllti skilyrði laga um meðferð einkamála. Framlagning gagna hafi einnig verið ábótavant þar sem skammstafanir nafna hefðu verið notaðar á sumum stöðum.
Landsréttur telur að samhengi málsatvika og málsástæðna sóknaraðila, sem og tilvísun til réttarreglna, nægilega ljós til þess að varnaraðilar hafi getað tekið til efnisvarna. Notkun skammstafana á nöfnum í stefnu væri ekki talið geta leitt til þess að lýsing sakarefnisins yrði óskýr.
Þá segir Landréttur að málsóknarheimild Samkeppniseftirlitsins helgist af „ríkum almannahagsmunum sem og því að dómstólar eigi lokaorðið eftir að ákvörðun um viðurlög liggur fyrir.“ Samskipum beri að greiða Samkeppniseftirlitinu kostnað við að kæra úrskurð héraðsdóms til Landsréttar.
Lengd stefnu ráðist af sakarefni
Í tilkynningu er haft er eftir lögmanni Samkeppniseftirlitsins, Gizuri Bergsteinssyni, að úrskurður héraðsdóms hafi komið á óvart. Lengd stefnu ráðist fyrst og fremst af sakarefninu og þeim kröfum sem réttarfarslög gera um að það sé reifað með gagnorðum og skýrum hætti.
„Það er vandasamt að draga saman kjarnann í umfangsmiklu ólögmætu samráði sem er lýst á yfir þrjúþúsund blaðsíðum í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.“
Í tengslum við málið í fyrir Landsrétti hafi Samkeppniseftirlitið aflað upplýsnga um framkvæmd samkeppnismála hjá nágrannaþjóðum Íslands. Í ljós hafi komið að málflutningsskjöl í samkeppnismálum hjá til dæmis Dönum og Norðmönnum séu iðulega mikil að umfangi.