Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur lítið látið fyrir sér fara í umræðunni fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag þar til í dag. Sagði Katrín að hún ætlaði að kjósa nei í ræðu á fundi samtakanna Áfram Ísland. Þar vitnaði hún m.a. til orða framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar og gerði lítið úr þeim. Eiginmaður framkvæmdastjórans gagnrýnir Katrínu harðlega og segir ljóst að hún, fyrrum leiðtogi vinstri flokks, hafi gengið peningaöflunum í landinu á hönd.
Segir Katrínu hafa gengið peningaöflunum á hönd - Sitji í stjórn félags sem græði á verðtryggingunni