„Ég kom fyrst til Íslands 25. febrúar 1999, þegar ég var 41 árs, en vil halda tengslum við þjóð mína, fjölskyldan mín er hér á Íslandi, synir mínir eru hér og barnabarn en ég á systur og frændfólk á Kúbu,“ segir íþróttaþjálfarinn sem í apríl 2022 var sæmdur gullmerki Frjálsíþróttasambands Íslands fyrir störf sín.
Við grípum niður í hluta tölvupósts Albertos:
Á Kúbu ríkir einræði. Kúbverjar búa við mikinn skort. Það er ekki til matur, það er ekki til vatn, það er ekki til rafmagn. En þetta er ekki út af viðskiptabanni Bandaríkjanna. Þetta er af því að ríkisstjórn Kúbu bannar allt. Almenningi er bannað að veiða fisk, það er bannað að rækta og selja frjálst. Það er ekki frjáls markaður á Kúbu. Það er bara ríkisstjórnin sem veitir ákveðnum aðilum leyfi til að veiða við strendur Kúbu.
Þetta er ekki út af viðskiptabanninu, þetta eru stjórnarhættir ríksistjórnarinnar. Ríkisstjórn Kúbu hefur lagt mikla peninga í að byggja ný og glæsileg hótel í staðinn fyrir að endurnýja verksmiðju til að búa til rafmagn. Spítalar eru ónýtir og lyf eru ekki til. Þetta er ekkert út af viðskiptabanni Bandaríkjanna. Kúba á viðskipti við margar þjóðir heims.
Samtíningur mynda frá Kúbu sem Alberto sendi mbl.is. Fjölskylda hans missti landareign sína í hendur kommúnistastjórnarinnar.
Ljósmynd/Aðsend
Misstu allt í hendur Castros
„Þarna hefur aldrei orðið nein breyting,“ segir Alberto, „við fjölskyldan áttum land, það var ekki mjög stórt en það var okkar land og þeir tóku landið af okkur. Afi minn var frá Spáni og fjölskylda hans kom þaðan þegar borgarastyrjöldin geisaði þar. Fjölskyldan eignaðist land og reyndi að draga fram lífið en við misstum allt í hendur stjórnar Castros,“ heldur hann áfram.
Alberto segir 85 prósent ræktarlands á Kúbu komin í hendur stjórnvalda eyríkisins „og stjórnin ræktar þar bara fyrir herinn og lögregluna, fyrir hótelin og til að selja til útlanda. Þess vegna er ekki til matur á Kúbu,“ segir Kúbverjinn sem kom upphaflega til Íslands til að taka við þjálfarastarfi sem honum bauðst.
„Þær kröfur voru gerðar að þjálfarinn talaði ensku auk eigin tungumáls og eins tungumáls að auki og gæti þjálfað í öllum greinum frjálsra íþrótta og hjá öllum aldursflokkum. Þess vegna kom ég hingað á sínum tíma og gerði samning við stjórnvöld á Kúbu í eitt ár um að ég sendi 85 prósent minni launa í hverjum mánuði til Kúbu sem þýðir að ég var að vinna eins og þræll fyrir þetta fólk, eins og allir. Þess vegna fékk ég að vera hér áfram, annars hefði ég þurft að snúa til baka,“ segir Alberto.
Góður tími við þjálfarastörf
Hann átti góðu gengi að fagna sem þjálfari hjá ÍR og eftir að hann hafði fengið atvinnu- og dvalarleyfi til eins árs á Íslandi upphaflega sömdu vinnuveitendur hans við hann áfram. „Ég fékk fleiri samninga og meiri tíma,“ segir Alberto en meðal þeirra sem æfðu frjálsar íþróttir undir handleiðslu hans var Einar Karl Hjartarson hástökkvari.
„Ég man vel eftir því að fyrir Ólympíuleikana í Sydney árið 2000 var lágmarkið 2,25 metrar en hann stökk þá 2,24. Veturinn eftir, í febrúar 2001, stökk hann svo 2,28 metra og setti Íslandsmet í hástökki sem enn stendur,“ rifjar Alberto upp og kveðst aðspurður kunna frábærlega við sig á Íslandi.
Alberto kann vel við sig á Íslandi þar sem hann hefur búið um langt árabil og átt þátt í uppbyggingu margs frjálsíþróttakappans.
Ljósmynd/Aðsend
Hann starfaði sem sjúkraþjálfari á Landakoti í fjögur og hálft ár og þjálfaði frjálsar íþróttir á kvöldin, flutti sig yfir til Breiðabliks er fram leið og fékk þar góðan samning sem gerði honum kleift að einbeita sér að þjálfun í stað þess að vinna önnur störf á daginn til að eiga fyrir salti í grautinn.
„Og þar var ég þangað til ég fór á eftirlaun fyrir einu og hálfu ári, þetta var frábær tími hjá Breiðabliki,“ segir Alberto sem einnig þjálfaði Júlíu Kristínu Jóhannesdóttur, frjálsíþróttakonu í Texas í Bandaríkjunum, sem núna í mars setti Íslandsmet í 60 metra grindahlaupi á HM í frjálsum íþróttum innanhúss í Póllandi og bætti metið raunar fjórum sinnum á sex vikum.
„Auðvitað er hún með annan þjálfara núna en ég tók þátt í að byggja hana upp frá því hún var sex-sjö ára, ég er ánægður, sáttur og glaður yfir því,“ segir Kúbverjinn og hér má lesa annað brot úr pósti hans um ástandið á Kúbu og hver á þar sök og hver ekki:
Hér á Íslandi er talað mjög illa um Donald Trump og Marco Rubio. En Íslendingar vita ekki hvað kúbverska þjóðin vill og hver staðan er. Við Kúbverjar viljum frelsi. Eigum við ekki rétt á að hafa frelsi? Eigum við ekki rétt á að hafa kosningar? Frjálsar kosningar. Eigum við ekki rétt á að hafa fleiri flokka í stjórn? Ekki bara kommúnistaflokk.
Á vegum stjórnvalda er fyrirtæki sem heitir Gaesa. Þetta fyrirtæki er á vegum hersins og stjórnar öllu á Kúbu. Nýlega hafa komið í ljós gögn sem sanna að Gaesa er með meira en átján milljarða dollara í Panama-skjóli. Og þetta eru bara fréttir af Panama-skjólum. Peningar sem þeir eiga í Panama. Það er ekki komið í ljós hvað þau eiga mikið í bankanum í London til dæmis. Bankinn sem heitir Havint Bank í London er í eigu Castro-fjölskyldunnar. Á sama tíma pressar ríkisstjórn Kúbu þjóðina svona niður, niðurlægir, kúgar og lemur, fangelsar og jafnvel drepur fólk sem mótmælir ástandinu.
Herinn stýrir öllu
Ástandið segir Alberto að miklu leyti stafa af innri byggingu samfélagsins á Kúbu og ákvörðunum stjórnvalda þar, kúbverski herinn stýri stórum hluta efnahagsins gegnum Gaesa, hann stýri ferðamannaiðnaðinum, hótelum, verslun og innflutningi og bendi gagnrýnendur á að miklum fjármunum hafi verið varið í lúxushótel í stað þess að styrkja innviði á borð við mannvirki til raforkuframleiðslu og heilbrigðiskerfið.
Niðurstaða Albertos í tölvupósti hans – en hann er einnig iðinn við að fjalla um málefni Kúbu á Facebook-síðu sinni – er eftirfarandi:
Það er fullkomlega skiljanlegt að kúbverjum finnist umræðan á Íslandi og á RÚV stundum einhliða. Oft er litið á viðskiptabannið sem einu ástæðuna fyrir fátæktinni, sem dregur athyglina frá alvarlegri spillingu, mannréttindabrotum og efnahagslegri vangetu kommúnistastjórnarinnar sjálfrar.
Kúbverska þjóðin á að sjálfsögðu rétt á frelsi, lýðræði, frjálsum kosningum og tækifærum til að byggja upp eigið líf án ótta og hafta.