Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í Hvíta húsinu í gærkvöld að evrópskir bandamenn, sérstaklega Bretar, Þjóðverjar og Ítalir, hefðu brugðist Bandaríkjunum í stríðinu í átökunum við Íran. Hann sagði að Bandaríkin hefðu lagt til miklar upphæðir til verndar Evrópu.
Þessi ummæli Trumps koma skömmu fyrir fund hans og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Rutte er á leið í heimsókn til Washington og fundar með Trump á miðvikudaginn. Í næsta mánuði fer Trump á leiðtogafund NATO í Tyrklandi.