Vladimir Pútín Rússlandsforseti og Alexander Lukashenko forseti Belarús ætla að funda á næstunni vegna ummæla Úkraínuforseta um að Belarúsar séu að gera Rússum kleift að gera árásir á Úkraínu með samskiptabúnaði.
Zelensky sagði að ef stjórnvöld í Minsk fjarlægi ekki samskiptabúnað sem hefði gert árásirnar mögulegar innan einnar viku, þá myndu Úkraínumenn sjá sjálfir um að fjarlægja hann.
Kyiv Independent hefur eftir talsmanni Kremlarstjórnar, Dmitry Peskov, að tilefni fundar Pútíns og Lukashenko séu ummæli Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta .
Peskov fordæmdi þessi ummæli Zelenskys og sakar hann um að hóta fullveldi Belarús.
Zelensky segir að búnaðurinn sé flutningskerfi milli fjarskiptaturna sem styðja við drónaárásir Rússa í Úkraínu. Til að hægt sé að nota Shahed-dróna þarf bæði fjarskiptanet og búnað á jörðu niðri til að stýra langdrægum árásum.
Í árásum á Kyiv og norður Úkraínu hefur sést til slíkra dróna á flugi nærri landamærum við Belarús áður en þeir ráðast á skotmörk lengra inn í Úkraínu.