Landinn er duglegur við að skamma aðra fyrir slælega ökumennsku og illa lagða bíla en það er afar sjaldgæft að einhver gefi sig sjálfur fram og það með afsökunarbeiðni líkt og Oliver nokkur gerði í Facebookhópnum Verst lagði bílinn. Í þeim fjölmenna hópi er yfirleitt einhver sem birtir mynd af illa lögðum bíl og fólk getur svo keppst við að kalla viðkomandi öllum illum nöfnum. Í þetta sinn var það þó Teslueigandinn Oliver, sem má mögulega kalla samviskusamasta ökumann landsins, sem steig fram:
Samviskusamasti ökumaður landsins fundinn? – Baðst afsökunar á lagningunni við Bónus