Samningamenn Evrópuþingsins og ráðherraráðs Evrópusambandsins náðu í nótt samkomulagi um innleiðingu Turnberry-samningsins svokallaða um viðskiptakjör milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins.
Samningurinn var handsalaður í júlí í fyrra á fundi þeirra Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en tafir hafa orðið á innleiðingu hans; innan aðildarríkjanna var víða óánægja með að Evrópusambandið hefði fallist á flatan fimmtán prósenta toll á langflestar vörur frá aðildarríkjunum. Framferði Bandaríkjastjórnar, til dæmis hvað varðar Grænland og Danmörku, varð einnig til þess að tefja framgang þessa máls á Evrópuþinginu.
Töfin varð að lokum til þess að fyrr í þessum mánuði hótaði Trump tollahækkunum, meðal annars á evrópskar bifreiðar, yrði ekki gengið frá þessum samningi fyrir byrjun júlí.
Nokkrir varnaglar hafa verið settir inn í samninginn, meðal annars um að Bandaríkin þurfi að lækka tolla á stálvörum frá Evrópusambandinu fyrir lok þessa árs, og að Evrópusambandið geti metið hvort innflutningur frá Bandaríkjunum hafi skaðleg áhrif á iðnaðargeira heima fyrir í aðildarríkjunum. Hins vegar var hætt við að hafa í samningnum ákvæði um að hann skyldi falla úr gildi, ef Bandaríkin ógnuðu á einhvern hátt fullveldi aðildarríkja ESB.
A deal is a deal, and the EU honours its commitments.
— Ursula von der Leyen (@vonderleyen) May 20, 2026
I welcome the agreement reached by the European Parliament and the Council on reducing tariffs for US industrial exports to the EU.
This means we will soon deliver on our part of the EU-US Joint Statement, as promised. I…