Samfylkingin vill efla hinseginfræðslu í leik- og grunnskólum Reykjavíkur
Samfylkingin vill halda áfram að efla hinseginfræðslu, kynfræðslu og kynjafræði í leik- og grunnskólum Reykjavíkur. Þetta kemur fram í nýrri grein Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur, sem skipar 3. sæti flokksins í Reykjavík. Í greininni segir hún að slík fræðslu sé mikilvæg fyrir sjálfsmynd barna, virðingu fyrir fjölbreytileika og sé forvörn gegn fordómum og bakslagi í jafnréttismálum.
Þessi stefna eru hluti af áherslum Samfylkingarinnar í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna þar sem flokkurinn segir að tekist sé á um framtíð jafnréttis-, mannréttinda- og velferðarmála í Reykjavík.
AuglýsingÍ greininni segir Steinunn að Samfylkingin vilji efla þessa fræðslu bæði innan leik- og grunnskóla borgarinnar og einnig í frístundastarfi.
„Jafn mikilvægt er að halda áfram að efla hinsegin fræðslu, kynfræðslu og kynjafræði,“ skrifar hún og segir þessa fræðslu stuðla að heilbrigðum samskiptum og aukinni þekkingu á mörkum, samþykki og virðingu.
Segir kosningarnar snúast um jafnrétti
Steinunn segir komandi borgarstjórnarkosningar snúast um hvort Reykjavík haldi áfram á sömu braut í jafnréttis- og mannréttindamálum eða taki skref aftur á bak.
Í færslu sem hún birti á Facebook bætir hún svo við að ýmsar tillögur frá öðrum flokkum, meðal annars um heimgreiðslur, fyrirtækjaleikskóla og niðurlagningu mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar, séu dæmi um stefnu sem geti veikt stöðu jafnréttismála í borginni.
„Við stöndum vörð um jöfnuð og jafnrétti, fjölbreytileika, mannréttindi og réttindi jaðarsettustu hópanna í samfélaginu okkar,“ skrifar hún.
Vilja styrkja mannréttindaskrifstofuna
Steinunn leggur einnig áherslu á að Samfylkingin vilji styrkja Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar en hafnar hugmyndum um að leggja hana niður.
Hún segir að aukin andúð á hinsegin fólki, bakslag í réttindabaráttu kvenna og „innflutt menningarstríð“ geri hana mikilvæga.
„Þessir flokkar eiga það allir sameiginlegt að vilja ekkert heitar en að gefa Samfylkingunni frí í borginni – ég er ekki hissa. Við stöndum vörð um jöfnuð og jafnrétti – fjölbreytileika, mannréttindi og réttindi jaðarsettustu hópanna í samfélaginu okkar.“
Auglýsing