Samdráttur milli ára en Ísland langt frá loftslagsmarkmiðum
Ísland mun draga úr samfélagslosun um 21 prósent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því langt frá loftslagsmarkmiðinu um 41 prósenta samdrátt. Losun dróst þó saman í öllum meginflokkum milli ára.
Ísland mun draga úr samfélagslosun um 21 prósent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því 20 prósentustigum frá settu markmiði um 41 prósents samdrátt. Þetta kemur fram í spá Umhverfis- og orkustofnunar um framreiknaða losun en stofnunin gaf út bráðabirgðatölur um losun gróðurhúsalofttegunda árið 2025 í dag.
Ísland hefur hingað til dregið úr samfélagslosun um 10 prósent miðað við árið 2005.
Samdrátturinn um 41 prósent á tímabilinu 2005–2030 er skuldbinding Íslands í landsákvörðuðu framlagi sem aðildarríki að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. Þá skuldbindur Ísland sig einnig við 50–55 prósenta samdrátt í samfélagslosun á tímabilinu 2005–2035. Spáin sýnir að Ísland muni árið 2035 hafa dregið losun saman um 30 prósent.

Ísland hefur sett sér markmið um að ná fram samdrætti í losun frá landnotkun um 400-500 þúsund tonn CO2-íg árið 2035 miðað við árið 2025. Miðað við framreikninga ætti það markmið að nást.
Framreikningar Umhverfis- og orkustofnunar …