Sakar lögreglu um „vítaverð afglöp“ í kirkjugarðinum í Keflavík

Sakar lögreglu um „vítaverð afglöp“ í kirkjugarðinum í Keflavík

Sakar lögreglu um „vítaverð afglöp“ í kirkjugarðinum í Keflavík

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður manns sem brenndist illa eftir afskipti lögreglu í Keflavík í vikunni, gagnrýnir framferði lögreglu harðlega. Hann segir lögreglu hafa gerst seka um vítaverð afglöp, meðal annars með því að eyða myndbandi af atvikinu.

Umbjóðandi Vilhjálms brenndist illa eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ á mánudag. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Noregs með alvarleg brunasár um allan líkamann til frekari aðhlynningar. Rafvopni var beitt í aðgerðunum og héraðssaksóknari hefur hafið rannsókn á atvikinu.

„Það er auðvitað hlutverk lögreglu að slökkva elda en ekki kveikja þá og afla sönnunargagna en ekki eyða þeim,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins.

„Það sem er algjörlega óumdeilt er það að umbjóðandi minn var þarna á nærfötunum og var búinn að skvetta yfir sig eldfimum vökva og það liggur fyrir að við þær aðstæður notaði lögreglan rafbyssu gegn honum. Og það er kunnara en frá þurfi að segja að þegar það er gert þá eru allar líkur á því að eldur kvikni þannig að það er með ólíkindum að lögreglan hafi tekið þessa ákvörðun sem þarna var tekin.“

Vilhjálmur segist hafa miklar áhyggjur af því að búið sé að rafbyssuvæða lögregluna í landinu ef skortur sé á kunnáttu til þess að meðhöndla vopn af þessu tagi.

Hann segir það hafa legið ljóst fyrir að ekki hafi mátt beita rafbyssu gegn umbjóðanda sínum í þessu tilviki, heldur hefði átt að sprauta duftslökkvitæki yfir viðkomandi. Það komi í veg fyrir að það kvikni í manneskjunni og hún yfirbugi hana á sama tíma.

„Líðan mannsins er grafalvarleg“

Vilhjálmur segir engar forsendur hafa verið fyrir notkun rafvopna í þessu tilviki þar sem engin hætta hafi stafað af umbjóðanda sínum. Þá sé það með ólíkindum að lögreglan hafi látið vitni eyða myndbandsupptöku af atvikinu, sem gert hafi verið í lögleysu.

„Það er ljóst að lögreglan hafði engar lagaheimildir til þess að grípa til þeirra aðgerða gagnvart vitninu og það er klárt brot á tjáningarfrelsisákvæði stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu.“

Líðan mannsins er grafalvarleg, segir Vilhjálmur. Honum hafið verið haldið sofandi frá því að atvikið átti sér stað.

„Hann var fluttur til Noregs með sjúkraflugi þar sem hann gekkst undir langa og stranga aðgerð í gær og mér skilst að líðan hans sé eftir atvikum. Hún er stöðug en ástandið er auðvitað grafalvarlegt í ljósi þess að umbjóðandi minn hlaut bruna á í kringum 50% líkamans við þennan verknað lögreglu.“

Segir mikilvægt að eitt gildi um alla

Atvikið er á borði héraðssaksóknara sem rannsakar málið. Vilhjálmur segist hafa gert kröfu um sakamálarannsókn. Í erindi sínu hafi hann tiltekið það að lögregla hafi látið eða sönnunargögnum í málinu.

Það veki upp spurningar og ýti undir mikilvægi þess að önnur sönnunargögn í málinu verði tryggð sem fyrst. Þá sé mikilvægt að sjá til þess að aðgerðir lögreglu og ákæruvaldsins samræmist þeim sem gripið yrði til ef ekki væri um lögreglumenn að ræða.

„Ég tel að það séu auðvitað ein lög í landinu og að það gildi eitt um alla. Þess vegna tel ég brýnt að héraðssaksóknari grípi þegar í stað til þessara rannsóknaraðgerða og ég hef enga ástæðu til þess að efast um annað en það að héraðssaksóknari hafi nú þegar framkvæmt þessar aðgerðir.“

Erfitt að leggja mat á aðstæðurnar að svo stöddu

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir atvikið ekki hafa ratað inn á borð sambandsins með formlegum hætti. Fulltrúar þess hafi þó fengið veður af því og það verið til umræðu.

Að sögn Fjölnis hafa lögreglumenn reglulega afskipti af einstaklingum í andlegu ójafnvægi án þess að vera sérstaklega búnir undir það. Hægt sé að velta ákvörðuninni fyrir sér eftir á en í aðstæðum sem þessum þurfi lögregla oft að bregðast skjótt við.

„Í þessu tilfelli erum við með mann sem er þarna hálfnakinn í einhvers konar geðrofi og lögreglumenn hafa stuttan tíma til að ákveða hvað á að gera. Við getum auðvitað ekki lagt mat á það hvort það voru teknar réttar eða rangar ákvarðanir á staðnum en við getum sett okkur í þessi spor, að þurfa að taka ákvörðun á nokkrum sekúndum um hvað á að gera,“ segir Fjölnir.

Fjölnir segir heildarmyndina skorta til þess að hægt sé að leggja mat á aðstæðurnar og þær aðgerðir sem fulltrúar lögreglu gripu til.

„Ég treysti mér ekki til að leggja mat á hvort rafvarnarvopn væri besta leiðin þarna eða ekki en ég veit að það er mjög erfitt að ætla að snúa niður þá sem eru búnir að maka yfir sig olíu eða einhverju öðru. Þú nærð illa taki á berri manneskju sem er búin að maka sig í einhverjum vökva með lögreglutökum.“

Segir áhyggjur af myndbirtingu mögulega hafa áhrif

Fjölnir segir tölfræðina ekki benda til þess að alvarleg atvik vegna notkunar rafvopna séu algeng hér á landi. Slíkum vopnum sé oftar hótað heldur en beitt.

„Flestallur svona búnaður eins og til dæmis piparúði virkar mjög illa á fólk í geðrofi eða bara ekki. Lögreglumenn vita það og þá hafa þeir væntanlega val um þetta eða að reyna að snúa viðkomandi niður og ég reikna með að þeir hafi nú verið búnir að tala við viðkomandi.“

Spurður hvort rétt hafi verið hjá lögreglumanni að skipa vitni að atvikinu að eyða myndbandsupptöku sem náðist af afskiptum lögreglu við manninn segir Fjölnir lögreglumönnum gert að segja fólki að mynda ekki annað fólk í erfiðum aðstæðum.

Þannig hafi áhyggjur lögreglumanns af því að birt yrði mynd af manninum í annarlegu ástandi mögulega sett strik í reikninginn.

„Maður gerir það oft ef það er alvarlegt bílslys og einhver er að taka myndir, þá bannar maður fólki að taka myndir af slösuðu fólki. Kannski hefði það verið rétt að segja frekar við manninn að hann mætti ekki birta þetta en hugmyndin er auðvitað sú að þarna sé ekki verið að taka mynd af fólki í erfiðum aðstæðum og að þetta fari þá ekki á internetið.“

#afglöp #kirkjugarðinum #lögreglu #sakar #vítaverð

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-21-sakar-logreglu-um-vitaverd-afglop-i-kirkjugardinum-i-keflavik-476139

📰 Aðrar fréttir

As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
📅 09.10.2026 👁️ 1
As freezing winter approaches, Kyiv residents look for shelter elsewhere
A renewed Russian campaign of strikes on power and energy infrastructure has made some contemplate leaving Ukraine's capital.
Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
📅 09.10.2026 👁️ 1
Telja að tvær vikur séu eftir af síldarvertíðinni
Síldarvertíðin gengur vel og fiskurinn er verkaður allan sólarhringinn hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Unnið er á tveimur tólf tíma vöktum og er...
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
📅 09.10.2026 👁️ 2
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar...
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 3
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 3
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 3
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
📅 08.10.2026 👁️ 3

Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 5
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 4
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says

Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 4
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
Zack Polanski defends leadership after row over Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 1
Zack Polanski defends leadership after row over Zionism motion
The Green Party leader has been criticised for his response to a motion passed by members declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...